SÁÁ
24. september 2009 / 23:56
Senda á Facebook

Við eigum skuld að gjalda

 

Þegar miklir erfiðleikar steðja að, reynir á siðferðisþrek okkar og samfélagsvitund og hið rétta eðli okkar kemur í ljós. Við þær aðstæður kemur líka í ljós hverjir eru hinir sönnu bandamenn og vinir. Við lifum nú á slíkum tímum og á næstunni verður það hlutverk allra siðaðra manna og kvenna að líta í kringum sig og berjast fyrir lítilmagnann um leið og reynt er að bjarga því sem við teljum verðmætast. Þegar skip sekkur er það háttur siðaðra manna að stilla sig og hemja og leyfa konum og börnum að fara fyrst í björgunarbátana.

 

Samfélag siðaðra

 

Nú eru uppi þær hugmyndir ráðamanna að draga þurfi úr heilbrigðisþjónustu. Vera kanna að einhversstaðar megi hagræða og spara í því kerfi, en sumt af því sem þar er gert, telst lífsnauðsynlegt og er ekki aðeins gert til að bjarga lífi og limum heldur einnig svo við getum með réttu kallað okkur siðaða menn og haldið uppi því samfélagi sem við viljum lifa í. Við vonum að engum detti í hug að minnka þjónustu við dauðveika sjúklinga, sérstaklega börn eða gamalmenni.

 

Deyr einn á viku

 

Starfsemi sem óumdeilanlega bjargar lífi er sú umönnun og lækning sem áfengis- og vímuefnafíklar hafa sótt sér á Sjúkrahúsið Vog. Hópurinn sem þangað þarf að leita hefur stækkað og verður sífellt veikari og veikari. Þó margir fái bót er sigurinn ekki alltaf vís og þrátt fyrir að allir leggi sig fram deyr einn á viku úr hópnum langt um aldur fram. Sprautufíklarnir verða sífellt eldri og veikari og dagdrykkjufólkið sem komið er yfir miðjan aldur er oft komið í beina lífshættu þegar það kemur á Vog.

 

Nú eru uppi hugmyndir og áform um að hægt sé að draga verulega úr framlögum til Sjúkrahússins Vogs og senda sjúklingana sem þangað leita eitthvað annað. Hvaðan sem slíkar hugmyndir koma eru þær fráleitar og beinlínis lífshættulegar fyrir dauðveika áfengis- og vímuefnafíkla. Þær lifa þó góðu lífi og fá byr undir báða vængi vegna vanþekkingar og fordóma gangvart dauðveikum fíklum.

 

Meðferð SÁÁ hrynur

 

Við sem erum í SÁÁ verðum að gera okkur grein fyrir því að þessi hætta er raunveruleg og steðjar að núna. Við höfum rætt um væntanlegar afleiðingar og gert okkur ljóst að ef ekkert verður að gert mun meðferð SÁÁ hrynja með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir sjúklingana og svo miklum kostnaðarauka fyrir sjúkrahúsin í landinu að mörg hundruð miljónir munu glatast.

 

Einu málsvarar þessara dauðveiku fíkla og Sjúkrahússins Vogs erum við hjá SÁÁ og okkur rennur væntanlega blóðið til skyldunnar. Ef kerfið rýfur varnir okkar mun sú ófreskja ekki láta staðar numið og rífur næst í sig aðra lífsnauðsynlega heilbrigðisstarfsemi sem stendur hjarta okkar jafnvel enn nærri.

 

Viljir þú leggja málstaðnum lið eða kynna þér málið betur sendir þú okkur á netfang samtakanna saa@saa.is  nafnið þitt, nafnnúmer, símanúmer og netfang.  Við sendum þér um hæl til baka, frekari upplýsingar. Þú getur líka mætt á kynningarfund í Von í Efstaleiti þriðjudaginn 29. september kl 20:00.

 

Fh. SÁÁ

Þórarinn Tyrfingsson

 

 

Til baka...
Bjöggi borgar.
- 25.9.2009 10:18:18 Björgólfur á nóg til að reka SÁÁ í mörg ár. Honum var bjargað frá drykkju fyrr á árum og mun borga.
PMG
Ég þekki marga sem eiga ykkur mikið að þakka.
Væri ekki ráð að SÁÁ fengi eitthvað af sköttunum sem lagðir eru á alkóhól?
Gunnar R.
- 25.9.2009 20:20:01 Er búið að gera öðrum sjúkrastofnunum viðvart, þannig að þær geti sett í gang neyðaráættlun til að taka á móti þessum sjúklingum. gosi.
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...