28. september 2009 / 22:57
Ríkið verður að standa við gerða samninga

Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„Við erum með samning við ríkið. Þótt menn séu blankir verður ríkið að standa við gerða samninga,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. Niðurskurðarhnífur ríkisins bítur á Vog eins og aðrar stofnanir innan heilbrigðiskerfisins og segir Þórarinn að sér hafi verið tjáð að stofnunin þurfi að skera niður um 6,7% á næsta ári. Framlög til sjúkrahússins voru skorin niður um 3,4% fyrir þetta ár. Upplýsingafulltrúi heilbrigðisráðuneytis segir ljóst að tillaga verði lögð fram um niðurfærslu allra þjónustusamninga en viðræður við þá sem í hlut eiga hefjast líklega í næstu viku, því séu allar tölur á reiki.
Þórarinn segir að einnig verði að hafa í huga að SÁÁ hafi orðið fyrir miklu tekjutapi vegna kreppunnar, s.s. í minni frjálsum framlögum. Áætlar hann að samtökin verði þannig af um 20 milljónum króna. „Svo verður að hafa í huga þá einföldu staðreynd að ákveðin útgjöld hjá heilbrigðisstofnunum eru að aukast á sama tíma.“
Starfsemin mun gjörbreytast
Þrátt fyrir að það sama verði yfir alla að ganga í niðurskurðinum segir Þórarinn ótækt að skera meira niður hjá Vogi og raunar siðferðislega rangt. „Við erum að veita deyjandi og illa förnum áfengis- og vímuefnasjúklingum þjónustu. Fólki sem er að biðja um sjúkrahúspláss. Ef við þurfum að spara svona mikið mun starfsemi okkar gjörbreytast. Það skipulag sem unnið er eftir núna og er grundvöllur meðferðar okkar riðlast. Við erum komin að þolmörkum. Við unum þessu ekki nema við fáum fram ótvíræð rök. Og þá hlýtur heilbrigðisþjónustunni að vera skylt að benda mönnum á hvert þeir eiga að leita ef þeir fá ekki þjónustuna á Vogi.“
Þórarinn segist ekki ætla að una niðurskurðinum og vill að ríkið standi við þjónustusamning sem gerður var í janúar 2008. Hann segist þó ekki vita hvort hann fari með málið fyrir dóm.
Morgunblaðið, laugardaginn 26. september, 2009