SÁÁ
15. október 2009 / 08:37
Senda á Facebook

Heilbrigðisráðuneytið gengur fram með óréttlæti og hagar sér óviturlega

Þórarinn Tyrfingsson

 

Sjúkratrygging Íslands er ekki gömul stofnun. Henni var komið á laggirnar um síðustu áramót. Hennar megin verkefni verður að semja við heilbrigðisstofnanir og  fyrirtæki sem veita heilbrigðisþjónustu fyrir hönd heilbrigðis- og tyggingarmálaráðuneytisins. Ein af fyrstu þjónustusamningunum sem stofnunin gerði var lítill samningur við SÁÁ um göngudeildarþjónustu upp á um 40 milljónir. Undir þennan samning var skrifað í janúar 2009. 

 

Samningurinn var gerður í skugga fjármálahrunsins og peningar frá ríkinu lágu ekki á lausu. Gætt var ýtrasta sparnaðar. Síðan þá hafa forsendur til þjónustusamninga lítið breyst.

 

Nú aðeins nokkrum mánuðum seinna tilkynnir Sjúkratrygging Íslands að hún ætli sér að breyta samningnum einhliða og með 3 mánaða fyrirvara og halda eftir af umsömdu framlagi 6.7%.

 

Enginn annar aðili í þjóðfélaginu mundi komast upp með slíkt. Ekki getum við ákveðið einhliða að breyta lánasamningum okkar við ríkið. Þetta er auðvita mjög óréttlátt og líklega ólöglegt og bitnar á áfengis- og vímuefnasjúklingum sem eru í þörf fyrir göngudeildarmeðferð.

 

Mörg  fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu hafa beðið lengi eftir að fá að gera þjónustusamninga við heilbrigðisráðuneytið eða Sjúkratryggingar Íslands. Þau hafa borið þá von í brjósti að með því mætti minnka þann óhemju óstöðugleika sem í því er fólgin að vera háður ákvarðanatöku ríkisins frá degi til dags í rekstri sínum. Það er mjög óviturlegt af Sjúkratryggingum Íslands að standa ekki við nýgerðan þjónustusamning því með því gefur stofnunin skýr skilaboð um það til allra heilbrigðisfyrirtækja að stofnuninni er ekki treystandi.

 

Við hverja ætlar svo stofnunin að semja í framtíðinni og um hvað?

 

Þórarinn Tyrfingsson

 

 

Til baka...
- 15.10.2009 20:48:47
Sjúkratrygging Íslands !T69RE
Þetta er afar athyglisverður Pistill á fóstra okkar, greinilega vanhæf samninganefnd gerir samning fyrir 9 mánuðum og ætlar nú einhliða að ákveða að breyta samningnum. Þessa samninganefnd Sjúkratryggina Íslands ætti ráðherra að leysa frá störfum hún er greinilega ekki starfi sínu vaxin. Það þarf alltaf a.m.k. tvo eða fleiri aðila til að gera samning og Sjúkratryggingar Íslands geta bara ekki gert þetta svona einhliða. Í siðuðu samfélagi þá fara menn einfaldlega fram á að taka upp samninga vegna breytra aðstæðna en ekki með svona valdboði. Átti ekki að búa til Norrænt velferðarkerfi á Íslandi ? Svona gera menn ekki. Hin tæra Vinstri stjórn er á miklum villigötum og besta ráð sem hægt er að gefa henni er að hreinsa til í áskriftarlaunakerfi embættismanna ráðuneytanna.
Sigurður S. Gunnarsson
Göngudeild
- 27.10.2009 22:02:46 Hef fengið nokkuð góða og stundum mjög góða göngudeildarþjónustu í gegnum tíðina en skil ekki hvernig hún getur kostað svona mikinn pening. Má ekki semja við Orkuveituna um afslátt af rafmagnskostnaði, ræða við símafyrirtæki um afslætti af símakostnaði, halda viðhaldskostnaðinum í lágmarki eins og er verið að gera á Staðarfelli og lækka laun yfirlæknisins ?
Glódís Karin E. Hannesdóttir
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...