Ef ríkið skerðir framlögin til Vogs er það ósanngjarnt, óviturlegt og líklega ólöglegt

Heilbrigðisráðuneytið gerði þjónustusamning við SÁÁ um rekstur Sjúkrahússins Vogs í janúar 2008. Við gerð þjónustusamningsins var gætt ýtrasta sparnaðar. Til að koma í veg fyrir skerðingu á þjónustu féllst SÁÁ í þessari samningagerð að greiða árlega 50-60 milljónir af sjálfsaflafé sínu til rekstursins á Vogi.
Ríkið dró úr framlögum til þessa þjónustusamnings einhliða og án skýringa 3.4 % á árinu 2009. Nú eru uppi áform um a ríkið skerði framlög til þessa þjónustusamnings enn meira eða um 6.7 %.
Endurskoðaður rekstrarreikningur Ríkisendurskoðunar mun sýna að SÁÁ greiðir 17-18% ( 100 milljónir) af kostnaði Sjúkrahússins Vogs árið 2009.
Rekstraráætlun sem nú liggur fyrir þar sem gert er ráð fyrir að rekstrarframlag ríkisins minnki um 6,7% frá því sem var 2009 sýnir að kostnaðarhlutur SÁÁ verður 30% ( 177 milljónir) 2010
Til að ná fyrirhuguðum sparnaði sem þarf að vera um 100 milljónir er ekki nóg að minnka umsvifin almennt heldur verður að leggja niður meðferðardeildir á Vogi eða meðferðarþætti. Það sem kemur þá til greina og mögulegt er að leggja af er
- Unglingadeild
- Viðhaldsmeðferð og skimanir fyrir lifrarbólgum og HIV
- Draga verulega úr innritunum og loka bráðmóttöku
Öll önnur þjónusta SÁÁ byggir á meðferðinni á Sjúkrahúsinu Vogi. Ef dregið verður úr starfseminni á Vogi munu önnur meðferðarúrræði SÁÁ nýtast verr eða leggjast af. Ef dregið verður úr bráðainnlögnum minnkar þjónusta við aðrar stofnanir eða leggst af. Ekki verður hægt að taka við sjúklingum frá Lögreglunni, Landspítalanum og öðrum stofnunum með sama hætti. Sjúklingar sem eru í viðhaldsmeðferð við morfínfíkn, búa í búsetuúrræði SÁÁ eða eru í annarri meðferð eða eftirfylgni og falla komast ekki auðveldlega á Vog þó að þeir þurfi þess og munu þurfa að bíða.
Þurfa ekki allir að skera niður ?
Það kanna að vera að það sé skynsamlegt að spara og jafnvel hægt í heilbrigðismálunum en suma heilbrigðisþjónustu er ekki hægt að skerða vegna þess að hún bjargar mannslífum eða líknar fólki eða er óhjákvæmilega ef við viljum kalla okkur siðaða þjóð. Starfsemin á Vogi er slík þjónusta og í raun hluti af bráðamóttöku sjúkrahúsanna. Flatur niðurskurður sem bitnar á Vogi er ósanngjarn þar sem SÁÁ hefur þegar sparað og tekur verulega þátt í að minnka kostnað ríkisins. Flatur niðurskurður er líka óviturlegu þegar hann minkar þjónustu sem sannanlega mun auka kostnað miklu meira en sparast á öðrum sjúkrahúsum. Það er að öllum líkindum ólöglegt að rifta þjónustusamningum einhliða til að ná fram flötum niðurskurði.
Þórarinn Tyrfingsson