Það er ekkert hreint eða náttúrulegt við „grasreykinn“

Það er stundum haft á orði að sígarettan sé lítil efnaverksmiðja sem framleiðir efni þegar kveikt er í henni. Það sama má segja um kannabisvindlinginn eða kannabisblönduna sem reykt er í þar til gerðum áhöldum.
Kannabisefni eru afurðir kannabisplöntunnar og í þeim eru auk vímuefnisins THC ( tetrahydrocannabinol) og rúmlega 60 náskyldra efna sem kölluð eru kannabinóiðar, hundruð annarra efna. Þegar kveikt er í þessum efnum myndast reykur sem í eru þúsundir efna. Sum þessara efna eru gufur en önnur eru agnir í örsmáum vatnsdropum sem berast niður í lungun þegar reykt er.
Að minnsta kosti 6000 efni er að finna í reyknum af hassi, grasi eða hvaða kannabisefni sem er. Kannabisreykurinn er nánast eins og sígarettureykurinn nema hvað í stað nikótíns eru komnir kannabinóíðar.
Í kannabisreyk eru krabbameinsvaldandi efni ( Carcinogens ). Tvö af hættulegustu efnunum í sígarettureyk hvað þetta varðar eru benzanthracene og benzpyrene. Þessi efni eru venjulega í meira mæli í kannabisreyk en sígarettureyk.
Það er því fátt hreint og náttúrulegt við „grasreykinn“ sem fer niður í lungu unga fólksins þessa dagana.
Þórarinn Tyrfingsson
Þórarinn hættu nú alveg
- 27.10.2009 05:34:36
Er ekki komið nóg af þessum hræðsluáróðri þínum. Sjálfur hef ég reykt hass/gras síðan ég var 18 ára, er núna 23, reyndar hass til að byrja með en eftir að ég fór að reykja gras hef ég ekki viljað sjá hassið, þar sem það legst þyngra í mig og finnst ég ekki fúnkera eins vel en þó ekki neitt á við áfengis eftirköstin. En já burt séð frá því, þá er gras ekki krabbameinsvaldandi, það ætti hvert manns barn að vita. Vitað er um einn mann sem dáið hefur úr neyslu kanabisefna, en það var einhver kjáni sem sprautaði í sig hassolíu. En sígarettan drepur fólk á hverjum degi. fyrir mér er það óskiljanlegt hvernig að fíkniefni eins og sígarettur eru lögleg en kanabis ekki. Mér líður vel þegar ég reyki og finnst ég eiga léttara með daglegt amstur svo sem nám og annað stress. Ég er greindur með ofvirkni og atyglisbrest og var lengi vel á rítalíni og þess konar efnum. Þessi efni létu mér líða ílla, missti matarlystina alveg, hafði enga orku, fékk stress-köst og varð þrotlítill þegar ég fór á fótboltaæfingar (rítalín er ástæðan að ég missti áhugan á fótbolta) og svo má lengi telja upp. Eftir að ég byrjaði að reykja gras þá hef ég róast mikið niður án þess að finna fyrir aukaverkunum, líður bara mikið betur og get einbeitt mér að einum hlut í einu. Þar sem ég hef neytt rídalíns og neytt kanabis þá hlít ég að geta dæmt um sjálfur hvort efnið henti mér betur. Það á að vera manns eigið val hvað maður setur ofan í sig, það kallast mannréttindi. En fyrst að þú ert svo fróður um öll þessi mál, þá ættiru kannski að kíkja á mynd sem heitir The Union - The business behind getting high, þetta er margverðlaunuð mynd og fram kemur í henni margar staðhæfingar sem hafa verið settar fram og flett ofan af þeim. flestar þessar staðhæfingar hefur þú komið sjálfur með. endilega kíktu á þessa mynd Þórhallur minn, hér er linkurinn http://video.google.com/videoplay?docid=-9077214414651731007#
Hættu að ljúga í fólk sem veit ekki betur, það er bara ljótt!
Another guy
Þórarinn , Opnaðu augun , þú átt að vita betur
Satt best að seigja , þá nenni ég ekki að þræta við þig því ég veit að þú ert tregari en múlasni
Cannabis gerir meira gott en slæmt og sættu þig við það.
Hmm
- 27.10.2009 07:43:55
Hvergi hefur verið sýnt fram á það að kannabis reykur hefur valdið krabbameini í einhverjum nema það hefur verið sýnt fram eistnakrabbamein í notendum sem reykja stilkana.. sem meðvitaðir kannnabisneytendur gera ekki.
En þvert á móti hefur verið sýnt fram á það að kannabis hægi á og komi í veg fyrir krabbamein, til dæmis í lungum og í heila.
En samt er rétt að það er aldrei holt að setja ofan í sig reyk, en þú virðist gleyma að hægt er að borða kannabis, sú leið til að neyta kannabiss er álíka hættuleg og að drekka vatn.
mannníðarar.
HRÆÐSLUÁRÓÐUR....er ekki búið að slá á puttann á ykkur BANNBULLUNUM nógu oft?
read and weap again þórarinn
http://www.landlaeknir.is/Pages/1460
Hvernig væri að skrifa undir skoðanir sínar?
- 27.10.2009 11:50:15
Það er til siðs að kvitta með nafninu sínu undir svona skoðanir gott fólk,
Ef þið eruð með rannsóknir sem sýna fram á það að kannibis reykingar valda EKKI krabbameini, þá endilega pósta þeim hér svo við getum séð það. :)
Annars velti ég því fyrir mér af hverju fólk sem er svona móti Þórarni Tyrfingssyni er að skoða SÁÁ heimasíðuna? ;)
Ingi Þór Eyjólfsson
..?
Og heldur þú virkilega, í samanburði við það að venjulegur tóbaksreykingamaður reykir u.þ.b pakka á dag (20 sígarettur) að venjulegur kannabisreykingamaður reyki 20 jónur á dag?
Vinsamlegast hættu að berjast stríðið af þinni hálfu með hræðsluáróðri og lygum ef þú vilt vera marktækur, það að það sé 6000 efni í reyknum segir ekkert til um hreinleika hans því hver segrir að fjöldi mismunandi efna sé eitthvað slæmur? Hver segir að öll þessi 6000 efni séu öll slæm fyrir þig? Í augum almennings þá eru háar tölur sem þessi hræðandi, og þá sérstaklega þegar þær eru settar svona fram í þeim eina tilgangi að hræða almenning. Og einnig eru til aðferðir til neyslu kannabisefna aðrar en að reykja það, t.d "vaporization" eða að nota kannabis í matargerð.
Og svo ég vitni í rannsókn framkvæmda af Dr. Melamede við University Of Colorado: " The pharmacological effects of tobacco and cannabis smoke differ in many ways, mainly because tobacco smoke contains nicotine while cannabis smoke contains tetrahydrocannabinol (THC). The cancer-promoting effects of smoke are increased by nicotine, while they are reduced by THC.
Tobacco and cannabis smoke contain the same carcinogenic compounds -- and depending on which part of the plant is smoked, cannabis smoke can contain more of them -- but, whereas nicotine activates these carcinogenic compounds, THC has been shown to inhibit them in mice cells. THC is very likely to have protective effects against the carcinogens present in smoke in humans too, but cannabis smoke remains nonetheless carcinogenic.
While nicotine and THC can act on related cellular pathways, they bind to different receptors to activate these pathways. The cells of lungs and the respiratory passages are lined with nicotine receptors, but do not appear to carry THC receptors. This explains why cannabis smoking has not been associated with lung cancer, a main cause of death from cigarette smoking.
Cannabis has also been shown to kill cancer cells and to reduce tumour growth, in part by reducing the formation of blood vessels that feed tumours. But "the effects of cannabinoids are complex and sometimes contradicting", warns the author. In addition, as cannabis is frequently smoked with tobacco, the effects of the two drugs may interact in complex ways. "
Ekki það að þessi rannsókn muni breyta fordómum og áróðursstríði ykkar í garð efnisins en þetta talar þó sínu máli og getið þið ekki bara hunsað þessar rannsóknir ef þið viljið hafa rétt á því að fjalla um þetta efni.
Í lokin vil ég hvetja SÁÁ til heimildarfærslu fyrir því sem þið setjið fram í umræðuna, því ég hef aldrei fengið eina einustu heimildafærslu fyrir því sem þið segjið og skrifið um kannabis.
Pálmi Rúnar Jóhannsson
Hérna eru líka áhugaverðar upplýsingar um kannabis
- 27.10.2009 13:05:25
http://www.nida.nih.gov/DrugPages/Marijuana.html
Ingi Þór Eyjólfsson
Og þið haldið áfram!
Einsog að stofnun sem að er rekin af Bandarísku ríkisstjórninni sé marktæk? Rekin af ríkisstjórn sem hefur verið hvað þekktust fyrir að ljúga að fólki? Þú verður að vega og meta hvaðan rannsóknirnar koma og út frá því hversu hlutlausar og marktækar þær eru.
Pálmi Rúnar Jóhannsson
Áhrif á heilastarfsemina.
- 27.10.2009 13:59:25
Ekki fara kannabisefnin vel með heilastarfsemina. Sést best á því að þessir menn hér að ofan skilja ekkert hvað Þórarinn er að skrifa og skilja engin rök. Þeim er bent á niðurstöður heilbrigðisstofnunar Bandaríkjanna, en þær falla þeim ekki í geð og eru bara afskrifaðar með pólitískri þvælu, að ekkert amerískt sé marktækt. Þarf frekar vitnana við ?
jahá
ætli konan á myndinni hafi misst ungan son sinn í kanabisreykingum?
ég hristi hausinn
..
- 27.10.2009 14:19:29
Hver sem þú ert hér að ofan (augljóslega þorir ekki að koma undir nafni)
Þá eru engin rök í því sem Þórarinn skrifaði því ef þú vilt vera marktækur þá þarftu að geta fært marktækar heimildir fyrir máli þínu.
Vinsamlegast ekki vera að leggja þín orð í minn munn, ég sagði aldrei að "amerískir" hlutir væru ekki marktækir ( og skil ekki hvað þú ert að væla um að kannabis hafi augljóslega slæm áhrif á heilastarfsemina þegar þú sjálfur ert það undir meðalgreind að þú veist ekki að Ameríka er heimsálfa, ekki land).
Aftur á móti er það engin vitleysa að bandaríska ríkisstjórnin hefur verið þekkt fyrir að ljúga að fólki sínu og síðast þegar ég vissi voru lygarar ekki marktækir, að kalla það pólitíska þvælu endurspeglar bara enn frekar treggáfu þína og hve blindur þú ert gagnvart veruleikanum.
Pálmi Rúnar Jóhannsson
þetta er sönnun á svörtu og hvítu
er ekki búið að gera fólki grein fyrir því að þórarinn sé ekki að seigja sannleikann þetta kom framm í stórum dálk í eina blaðinu sem að er frítt á íslandi(fréttarblaðinu) af landlækni sem að bara hreint út skammaði hann fyrir að gefa röng rök fyrir þessu efni er þórarinn með einhverjar gráður eða einhvað vit til þess að geta sagt þetta um kannabis hann rekur sjúkra húsið vog og er í þessu sáá og það sem að heldur þessu sáá uppi eru spilafíklar svo eru þeir að hjálpa fólki að sigrast á fíknum sínum en ýtir svo undir það á "loglegan"hátt með spilakössum þetta finnst mér ekki vera rétt að gera en það er bara ég ég get ekki stjórnað ykkur en ég ætla að vona að þið látið ekki stjórna ykkur og heilaþvo ykkur og lærið um þetta sjálf.
Ágúst Georg csillag.
Elsku hjartans Tóti minn,
- 27.10.2009 15:29:35
Kannabis er krabbameinsvaldandi, já. Það er tóbak líka, og blátt M&M (eða var það allavega einusinni), og franskar, og sólarljós, og bara allur andskotinn af hlutum sem fullorðnar manneskjur eiga að hafa fullan rétt tilað ákveða sjálfar hvort þær koma nálægt eða ekki. Sumir taka þá ákvörðun að taka heilbrigðan líkama framyfir flest annað, og þeir halda sig fjarri þessum efnum og fara frekar í ræktina eftir vinnu, eða viðra hundinn, eða stunda kynlíf. Sem er auðvitað mjög heilsusamlegt og allt gott og blessað með það. En aðrir eru nautnaseggir og vilja frekar fá sér franskar á Hressó með félögunum, eða reykja eina jónu eða tvær og horfa á bíómynd þegar þeir eru búnir að sinna skyldum sínum. Og afhverju í ósköpunum mega þeir ekki bara gera það í friði? Þórarinn minn, þessi hræðsluáróður virkar ekki. Ef þér er í alvörunni umhugað um að tala kannabisneytenda fari fallandi er eina vitið að gera fólki heiðarlega grein fyrir kostum og göllum efna (með áherslu á HEIÐARLEGA), og leyfa fullorðnum manneskjum að taka ákvarðanir uppá eigin spýtur um hvað þær láta í eigin líkama. Auðvitað eru grasreykingar barna og unglinga hið versta mál, en væri ekki betra að koma fram með heiðarlega (-sjaldan er góð vísa of oft kveðin-) fræðslu, þarsem unglingunum væri sagt að ef þeir eru alveg óóóstjórnlega forvitnir um kannabis, og geta óóómögulega hugsað sér að rúlla í gegnum lífið ánþessað prófa, þá er best að bíða þartil þeir hafa náð fullum þroska? "Það er skynsamlegt að bíða" hljómar betur og virkar betur í eyrum flestra uppreisnargjarnra unglinga en "þetta er bannað!", það hlýtur að segja sig sjálft. Og ég, verandi sjálf uppreisnargjarn unglingur innvið beinið, get persónulega vitnað um það. Boð og bönn sveipa hluti dulúð og spennu, þannigerðabara. Unglingarnir myndu þá kannski (ég endurtek: kannski) bíða uns fullum vexti er náð, skaðast minna af fyrstu tilraunum sínum með kannabis, og margir hverjir vaxa uppúr þessu eftir nokkur ár, einsog kannanir hafa margsýnt að er einmitt það sem gerist. Margir myndu líka halda áfram hófneyslu alla tíð (bara svona einsog fullt af fólki fær sér vínglas með sunnudagssteikinni og bjór yfir boltanum og fer stundum í partý), en einhverjar prósentur myndu auðvitað lenda í vandræðum með neyslu sína. Ekki afþvíað kannabis gerir fólk að fíklum, heldur afþvíað fíklar ERU fíklar, og þeir eru fíklar afþvíað þeim líður illa. Fíkn er einkenni vanlíðunar, en ekki sjúkdómur. Vanlíðan, sem getur verið sjúklegt þunglyndi eða óútkljáð fjölskyldumál eða bara eitthvað annað, getur orðið það sterk að fólk leggur á veruleikaflótta og leitar í vímuefni til einhvers meira en dægradvalarinnar - sem vinkonuhópurinn sem fær sér bjór á kaffihúsi er að leita að, og væmna kærustuparið sem reykir jónu og horfir á sólsetrið er að leita að. En þessar prósentur sem líður illa eiga skilið að fá hjálp tilað vinna úr VANLÍÐANINNI sem liggur að baki vímuefnaneyslunni, og prósenturnar sem líður vel og hafa stjórn á neyslu sinni eiga að hafa RÉTT og FRELSI tilað halda henni áfram ef þær svo kjósa. Öfugt við það sem ýmsar áróðurshersveitir héldu fram um miðja síðustu öld, er hinn almenni kannabisneytandi nefnilega mjög svo skaðlaus umhverfi sínu. Það er kannski sjúklega pirrandi að vera starfsmaður á Subway og þurfa að sinna sérþörfum einhverrar freðinnar gellu sem vill hafa sósuna öfugu megin og súru gúrkurnar á servíettu frekar en á bátnum, og er svo geðveikt lengi að telja peningana sína - en er það ekki aðeins skárra en fulla gellan sem dettur á glasastandinn og er svo búinn að týna veskinu sínu og deyr svo á gangstéttinni fyrir utan? Ókei, þetta voru kannski ýkt dæmi, og lituð af áliti mínu á efnunum tetrahýdrókannabínóli og ethanóli, en það er nú engu að síður staðreynd að bólufreðinn náungi er hvorki að fara að myrða mömmu sína né ræna sjoppu tilað eiga pening fyrir meira grasi - hann er að fara að liggja á sófa með annað augað hálfopið og flissa annaðslagið að textavarpinu. Og koxa svo. Og ég skal þegja núna, er komin langt útfyrir efnið...
P.S. Ingi Þór - möguleg ástæða þess að sumir vilja ekki koma fram undir nafni: Sá fyrsti tilað kommenta á þessi skrif Þórarins er t.d. að deila reynslu sinni af kannabisreykingum, sem eru ólöglegar á Íslandi. Hann er því "glæpamaður" og væri líklegast ekki sniðugt fyrir hann að koma fram undir nafni. Þeir sem tala með FRELSI EINSTAKLINGSINS eiga það einnig á hættu, hefur sýnt sig, að vera titlaðir hassbullur og heilasteikur, svo það er einfaldlega mjög skiljanlegt að margir kjósi að skýla sér á bakvið nafnleynd.
Einnig: NIDA er nú svona álíka marktæk stofnun og SÁÁ, og það hlýtur hvert sæmilega viti borið mannsbarn með nennu tilað gúgla og skoða rannsóknir að sjá að það mark sem takandi er á mörgum greinum sem birtast hér eru, tja... ómarktækar.
Nafnlaus
Þetta átti auðvitað að vera: "...það hlýtur hvert sæmilega viti borið mannsbarn með nennu tilað gúgla og skoða rannsóknir að sjá að margar þær greinar sem birtast hér eru, tja... ómarktækar." Og oj, afsakið þennan langa samfellda texta. Ég sver að upphaflega voru greinaskil í honum! :(
Nafnlaus
Vitnaðu í ransóknir eða viðurkenntu að þú hefur engann grunn fyrir staðhæfingum þínum.
- 27.10.2009 19:18:15
Það er skammarlegt að anti-kannabis menn skuli endalaust draga rógburð, lygar, og annann hræðsluáróður úr afturendanum á sér. Ef þú villt vera tekinn alvarlega, reyndu þá að styðjast við "peer reviewed research articles".
Miniar
Krabbameinsvaldandi?
Ef kannabis væri krabbameinsvaldandi þá væri líklega einhver með krabbamein út af kannabisefnum og líklega einhver í heiminum búinn að deyja og mætti það rekja til kannabisefna. En þar sem það hefur ekki gerst, og mun aldrei gerast getur þú troðið þessum fróðleiksmola upp í rasskatið á þér! Face facts! þú getur þetta ekki lengur. Lögreglan getur þetta ekki lengur. Ríkisstjórnin getur þetta ekki lengur. Það vita núorðið of margir sannleikann um kannabisefni og hvað kannabis gerir. Það er ekki hægt að breiða lengur yfir það með greinum eins og " KANNABIS DREPUR HLUSTIÐ Á MIG!!! " . Það mun koma að því að kannabis mun vera lögleitt og það mun gerast á næstu 20-30 árum hvort annað sem þú heldur.
Farðu nú að einbeita þér að alvöru fíkniefnum eins og amfetamíni, e-töflum og kókaíni. þetta eru alvöru eiturlyf og það eru þau sem við viljum hreinsa landið okkar af! ekki kannabis.
Mannfreskjan
Jæja ætlið þið að hætta að ljúga?
- 29.10.2009 20:11:53
ég spyr þig Þórarinn Tyrfingsson, ætlar þú að hætta þessu hræðsluáróðri þínum og að fara að tala um kanabis á raunsæjan máta? ef þú svarar þessu ekki ertu enn meiri loddari en ég hélt!
hmmmm!
Frá heimasíðu landlæknis:
"Gagnrýnt hefur verið að þeir sem hafa aðra skoðun en SÁÁ séu nefndir ,,kannabisbullur”. Rétt er að þetta kemur fram á vef SÁÁ: “Kannabisefni eru einu ólöglega vímuefnin á Vesturlöndum sem eiga sér aðdáendahóp, "kannabisbullurnar" sem berjast skipulega fyrir lögleiðingu þeirra”. Tekið skal fram að þetta er skrifað á ábyrgð SÁÁ, en er ekki undirritað af Þórarni né öðrum læknum þar. Hafi hann notað það orð í umræddu viðtali verður það að teljast ófaglegt. Fólk hlýtur að mega hafa rökstudda skoðun á lögleiðingu kannabisefna án þess að vera uppnefnt af samtökum, sem reka ríkisstyrkta heilbrigðisþjónustu."
http://www.landlaeknir.is/Pages/1460
Ég held að við eigum það inni að fá að færa okkar rök fyrir fólki án þess að vera uppnefnd "kannabisbullur" Það er nokkuð víst að þessar endalausu rökræður á bloggsíðum á milli jaðarhópa í sitthvoru horni hafi lítil áhrif, við erum öll að berja höfðinu í sama steininn.
Hvernig væri að leyfa fólkinu að taka meðvitaða ákvörðun um þessi mál, byggða á staðreyndum, en ekki hleypidómum? Ef samtökin SÁÁ geta ekki treyst fólkinu til að taka eigin ákvarðanir, hvernig á fólkið þá að geta treyst SÁÁ.
Fjölskylda mín á SÁÁ mikið að þakka, og mér sárnar við tilhugsunina að meðlimir fjölskyldu minnar treysti á lygar.
Hefur reynsla annarra landa, fylkja og borga um heim allan verið könnuð? Nefni hér Portúgal, Holland og Vancouver borg í þeim efnum. Er heimurinn svo svart/hvítur, að ekki er hægt að breyta um leið, skipta um skoðun?
Hleypidómar og útskúfun eru ekki dæmi um opna og meðvitaðaumræðu.
Virðingarfyllst,
Kristinn Hilmar Marinósson
Þetta er þín skoðun á kannabis, ekki staðreynd
- 2.11.2009 16:52:10
Það er ekkert að því að líka ekki við kannabis, það er til nóg af fólki sem líkar ekki við það. En fyrir hönd allra íslendinga ætla ég að biðja þig um að hætta að þröngva þínum skoðunum af kannabis upp á aðra. Landlæknir er búinn að hundskamma þig fyrir að nota ekki vísindalegar aðferðir og sleppir að segja frá ýmsum staðreyndum. Hræðslustefnan virkaði aldrei, þú ert í stöðugt minkandi hópi fólks sem trúir þessu rugli. Hvernig væri að gera eins og læknar gera best og HJÁLPA fólki. Lögleiðing og eftirlit er framtíðin, þú ert fortíðin.
Arnaldur Sigurðarson
Afhverju
Ef ég má spyrja þá afhverju ertu svona mikið á móti þessu, ef þú hefur lesið þér eitthvað til um þetta þá ættiru að sjá hvað þetta er talsvert hættu minna en t.d. verkjalif sem að hægt er að fá út í apóteki. Ég er ekki að seigja að kannabis sé algjörlega skaðlaust en þetta er samt svo mikið betra en margt annað og hefur margfalt fleiri eiginleika en að valda tímabundinni vímu.
Serenity
afhverju er fólk alltaf að tala um reykin
- 11.11.2009 14:42:38
afhverju er bara talað um skaðsemi kannabisneyslu sem skaðsemi reykinga það er hægt að neita cannabis á annan hátt að sjálfsögðu er reykur skaðlegur það er engin að segja annað en reynið að einbeita ykkur að "skaðsemi" cannabis þegar þið talið um skaðsemina ekki skaðsemi reykinga hvaða barn sem er veit að slæmt er að reykja en hvet ég ykkur til að sýna mér hvort nokkur skaðsemi sé ef ég neyti blómanna á annan máta t.d borða þau
REYKINGAR DREPA
REYKINGAR DREPA
safsaf
fáviti
What The Fuck
- 26.11.2009 20:35:35
Þú getur ekki einu sinni fært rök fyrir máli þínu,
afhverju ættum við að treysta einhverjum fáfróða íslending sem hefur ekki einu sinni kynnt sér málefnið og hefur verið up-alinn á hræðslu á cannabis, það er Vísindaleg STAÐREYND að Cannabis DREGUR úr krabbameinslíkum og hjálpar krabbameins sjúklingum um allan heim að meðhöndla sinn sjúkdóm,
svo kemur þú hingað, skrifar eitthvað kjaftæði sem þú hefur ekki HUGMYND um, og þú getur ekki einu sinni backað kjaftæðið í þér upp
komdu með heimildir fyrir þessu, Heimildirnar eiga að vera vísindalegar staðreyndir YNGRI en 5 ára,
En Vitanlega er reykur skaðlegur, sama hvaða efni þú ert að reykja er hann alltaf skaðlegur
....
Óþarfi að halda áfram.
Þórarinn 0
Kannabis 1000
P....
Kjaftæði
- 17.4.2011 14:47:48
Ótrúlegt hvað fólk eins og þú heldur að það geti talað um hluti sem það hefur ekki hugmynd um hvernig virka.
Telur þú til dæmis að fólk sem notar kannabis til læknis notkunnar sé að fara að eyðileggja líf sitt á því?
Það eina sem heldur grasi á vondum stað er fólk eins og þú sem heldur því ólöglegu þannig fólk þarf að stunda viðskipti á svarta markaðinum.
Hlakka til þegar fólk með eins gamaldags hugmyndir og þú stjórnar ekki heiminum lengur og fólk fær að velja sjálft hvað það gerir við sinn líkama og sál.
Takk fyrir
hengdu þig
Hitler elskandi fasistinn þinn