SÁÁ
26. október 2009 / 20:23
Senda á Facebook

Eldra fólkið sem kemst ekki á Vog fer ekkert á göngudeildir

 

Á síðasta ári voru 2208 innlagnir á Vog og í 525 skipti áttu í hlut einstaklingar sem voru 50 ára og eldri. Það er sammerkt með þessum einstaklingum ef þeir eru ekki að koma af sjúkrahúsum, að þeir hafa drukkið daglega eða notað ávanalyf daglega í langan tíma nema hvort tveggja sé. Þeir geta ekki stoppað neysluna og komast því ekki í meðferðirnar sem boðið er upp á í göngudeildum.

 

Það sem meira er og mestu máli skiptir er að flestir þessara einstaklinga eru á lyfjum sem þeir þurfa að taka daglega. Í þessum hópi sjúklinga eru hjartasjúkdómar, háþrýstingur, lungnasjúkdómar og sykursýki mjög algengir.

 

Dagdrykkjan gerir alla þessa sjúkdóma verri og spillir lyfjameðferð þessa fólks svo auðvelt er að sjá í hvert stefnir ef þessum sjúklingum verður ekki sinnt á svipaða hátt á komandi ári og áður. Margir þeirra munu lenda á bráðamóttökum sjúkrahúsanna, leggjast þar inn og skapa þar margfalt meiri kostnað en sparast við það að fækka innlögnum þeirra á Vog.

 

Talið er að kostnaður þjóðfélagsins vegna áfengis og vímuefnasjúklinga sem koma á hin almennu sjúkrahús sé tvöfalt meiri en áfengis- og vímuefnameðferðir kostar. Einn dagur á öðru sjúkrahúsi kostar líklega 5-6 sinnum meira en einn dagur á Sjúkrahúsinu Vogi. Nýlega reiknuðu Bretar að áfengis- og vímuefnasjúklingur, ómeðhöndlaður, kostaði þjóðfélagið 3 milljónir á ári.

 

Sjúklingar sem eru 50 ára og eldri og komast ekki á Vog fara ekkert á göngudeildir. Þeir fara heim til sín eða á bráðamóttökur sjúkrahúsanna. Þetta er öllum ljóst sem eitthvað þekkja til málanna.

 

Þegar menn segja að fækka megi innlögnum á Vog og meðhöndla sjúklingana á göngudeildum vaða þeir í villu.

 

Þórarinn Tyrfingsson

 

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.