
Það eru bara fáeinir áratugir síðan að áfengis- og vímuefnaneytendur og ástvinir þeirra fengu nánast enga meðferð eða aðra þjónustu eins og hún þekkist í dag. Batahorfur þeirra voru slæmar.
Fordómar, þekkingarleysi og hræðsla var það sem mætti drykkjusjúku fólki sem leitaði í örvæntingu sinn eftir hjálp.
Árið 1977 þótti íslensku þjóðinni nóg um ráðaleysið og stofnuð voru samtök með það að markmiði að breyta þessu ástandi og koma af stað meðferð fyrir alkóhólista sem byggðist á bestu fáanlegu þekkingu og reynslu.
Það má segja að frá byrjun hafi SÁÁ notið velvilja frá þjóðinni og ráðamönnum á hverjum tíma. Samtökin urðu á fáeinum árum hluti af heilbrigðisþjónustu þjóðarinnar. Allir landsmenn nutu þessarar þjónustu og árangur af meðferð hjá SÁÁ varð til fyrirmyndar og er vitnað til hennar víða í heiminum þegar meðferð á áfengis- og vímuefnafíklum er til umræðu.
Það er skylda okkar að mótmæla kröftulega þeirri skerðingu á samningsbundnum framlögum til Vogs sem eiga að koma frá ríkinu samkvæmt undirrituðum þjónustusamningum. SÁÁ hefur staðið við sinn hluta samkomulagsins. Ef heldur fram sem horfir kemur sú skerðing í veg fyrir að Sjúkrahúsið Vogur geti haldið uppi nauðsynlegri þjónustu og mun starfsemi á öðrum starfstöðum SÁÁ riðlast eða leggjast af.
Þjónusta sem SÁÁ veitir sparar miklar fjárhæðir sem annars myndu birtast sem stórfelld útgjöld á bráðamóttökum, hjá lögreglu, í félagsþjónustu, á stóru sjúkrahúsunum og síðast en ekki síst í tapaðri framleiðni hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum vegna veikinda og fjarvista.
Í krafti velvildar almennings hefur SÁÁ tekist að byggja upp öfluga og fjölbreytta áfengismeðferð á Íslandi á undanförnum 32 árum. SÁÁ hefur ekki aðeins verið í forystu hvað varðar mismunandi meðferðarúrræði fyrir ólíka
hópa, eins og konur, ungt fólk eða þá sem eru veikastir, heldur hefur SÁÁ sýnt að samtökunum er fullkomlega treystandi til að veita góða þjónustu sem hefur verið ríkisvaldinu ódýr – og mun ódýrari en sambærileg þjónusta á vegum ríkisins sjálfs.
Sigurður Gunnsteinsson