Á að neita unga fólkinu um meðferð ?

Á síðustu 10 árum hafa 6389 einstaklingar þurft að koma á Sjúkrahúsið Vog í fyrsts sinn. Þegar aldur þeirra er skoðaður vekur athygli að flestir eru á aldrinum 17-22 ára þegar þeir koma í fyrsta sinn í meðferð á Vog (2390).
Tæpur helmingur (2940) var 25 ára og yngri. Þetta sést betur á línuritinu hér til hliðar.
Líta má svo á að þessi þróun sýni að aðgangur að áfengis- og vímuefnameðferð sé góður fyrir ungt fólk og það komi því miklu fyrr til meðferðar en áður.
Það jákvæða við þetta er að batahorfur þeirra sem koma snemma í meðferð eru mun betri en hinna sem koma seint.
Nágrannaþjóðir okkar sem lent hafa í svipaðri kreppu og við vara eindregið við því að draga úr heilbrigðisþjónustu og félagslegri þjónustu fyrir unga fólkið okkar. Þeir sem koma í meðferð á Vog eru flestir á aldrinum 17-30 ára.
Ef draga þarf úr fjölda innlagna á Sjúkrahúsið Vog verður það auðvitað til þess að fólk kemur seinna til meðferðar. Það verður einnig til þess að vísa þarf frá mörgu fólki sem er á aldrinum 17-22 ára.
Þórarinn Tyrfingsson
Stöndum vörð um meðferðar - möguleika ungs fólks á Íslandi !
- 9.11.2009 02:12:14
Kæru lesendur.
Það eru nokkrir mánuðir síðan ég skrifaði síðast álit mitt inn á vefsíðu SÁÁ.
Ég hef orðið fyrir fordómum úr öllum áttum frá fjölskyldu - meðlimum, vinum og svo
eru margir sem lesa þessa pistla. Vinir mínir kalla það að auglýsa aumingjaskapinn fyrir landslýð og
romsan sem ég fékk frá systur - dóttur minni var líklegast á við að fá eldingu beint í sig !
Það er sárt að upplifa mikla höfnun frá vinum og ættingjum á meðan á innlögn stendur yfir. Bara það að biðja einhvern um að útvega sér rakvélablöð, tannbursta og tannkrem því það er ekki selt á Vogi og fá frá vini til tugi ára höfnun er mjög sárt. Margt annað gæti ég talið upp en læt það vera.
Samt sem áður herðir þetta á manni skrábinn og eftir á að hyggja finnst mér þessi hræðsla og fordómar nokkuð skondnir en það reynir á að geta upplifað þessa þröskuldi á meðan meðferðin
fer fram. Dæmi hver sem vill ég vil og hef það fyrir stafni að fræða aðra í gegnum miðla.
Þegar ég kom inn á Vog 06 / 03 / 08. var sá sem fyrstur var til að heilsa mér 16 ára unglings - strákur hress og óskaði mig velkominn á Vog.
Þannig vildi til að ég dvaldi nokkuð lengi hjá þeim á Vogi og sá og kynntist mörgu fólki á öllum aldri
og í öllum stéttum mannlífsins. Flest af því ágætis fólk og mjög hæfileikaríkt og skemmtilegt.
Vegna þessa sá ég starf lækna, hjúkrunarfólks og ráðgjafa betur en þeir sem dvelja bara í 10 daga
eða skemur. Ég má ekki gleyma starfsfólkinu í eldhúsinu og þeim ágætu húsvörðum sem okkar gættu á næturnar. Allra þeirra góðu sjúkraliða sem eiga svo sannarlega von á jóla konfekti frá mér fyrir jólin.
Beint að efninu. Ég sá stóran hóp ungs fólks fara þarna í gegn og ég er stoltur af þeim sem ég
hitti í dag á sínum vinnu - stöðum og allt er í lagi með. Það er að sjálfsögðu sorglegt að sjá og eða
frétta af einstaklega góðum einstaklingum sem falla.
Þetta fólk er vandað og veit hvar hjálp er að finna og fer þá aftur í gegnum Vog þegar sálarlífið er búið að fá nóg og viljinn til að bæta sig er kominn aftur. Eldmóðurinn !
Ég hvet ættingja, systkyni, vini og aðra vandamenn að sýna okkur skilning og bregðast okkur ekki
þegar á hólminn er komið þ.e. þegar viðkomandi einstaklingur er kominn í meðferð.
Í Danmörku þarf að greiða stórar fúlgur fyrir að komast í meðferð og það er nú þannig hjá flestum
að fjárhagurinn býður ekki upp á það að greiða rúma eina milljón sem er núna á okkar gengi 2.5 milljónir fyrir meðferð.
Stöndum með starfsemi SÁÁ og leggjum hvert og eitt nokkur hundruð krónur t.d. 1.000 krónur
til samtakanna og þá helst til að drífa sjúkrahúsið og framhaldsmeðferðina.
SÁÁ má láta meira á sér bera í skólum landsins og á vinnustöðum vítt og breitt.
Eitt fannst mér vanta tilfinnanlega og það voru upplýsingar í formi bæklings eftir að meðferð
er lokið um hvað er í boð i eftir að út er komið úr vernduðum stað sem Vogur er.
Sláið á alla fordóma og hræðslu við þá. Þetta er einn sá besti skóli sem ég hef gengið í gegnum
með hjálp góðs starfsfólks !
Þetta verður líka góður skóli fyrir ykkur sem eiga það eftir að fara sömu leið og ég og þúsundir fleiri.
Sveinn Reynir Sveinsson.