Eftir Ingunni Hansdóttir, Magnús Einarsson og Guðbjörn Bjönsson
Það eru erfiðir tímar, skorið niður og sparað. Flestir skilja nauðsyn þess og eru tilbúnir að leggja sitt að mörkum. Rætt er um flatan niðurskurð á flestum sviðum, en er það sú leið sem fólkið í landinu vill fara?
Viljum við skera niður í heilsugæslu og ungbarnaeftirlit; viljum við láta skera niður krabbameinslækningar eða rými fyrir aldraða með heilabilun svo nokkuð sé nefnt? Flestir Íslendingar vilja alls ekki láta skera niður sjúkrahús, menntastofnanir eða stuðning við þá sem þurfa á hjálp að halda og geta ekki bjargað sér sjálfir. Þetta er sú grunnþjónusta sem við sem Íslendingar höfum stolt byggt upp á síðustu öld. En hvers konar þjóðfélag viljum við nú hafa?
Það er staðreynd að við þurfum að spara og þá skulum við byrja á að skera niður dauða hluti en láta lifandi fólk og sjúklinga í friði. Við erum að tala um börnin okkar, foreldra og hugsanlegt er að við sjálf þurfum skyndilega á aðstoð að halda og viljum svo sannarlega að hún sé til staðar.
Það eru hópar í þjóðfélaginu sem eiga sér fáa eða enga málsvara. Hver hlustar t.d. á drukkinn mann, hver er málsvari húsmóður í vesturbænum sem er að drekka sig í hel? Hver tekur að sér dauðsjúkan vímuefnafíkil sem þarf bráðaaðstoð? Alkóhólistar eiga sér a.m.k. einn tryggan málsvara, SÁÁ.
Það á að spara með því að draga úr þjónustu við áfengis-og vímuefnasjúklinga, en hvað sparast?
Heilsuhagfræðingar hafa lengi vitað að áfengismeðferð sparar þjóðfélaginu gríðarlega mikla fjármuni. Í Bandaríkjunum birtist fyrir mörgum árum skýrsla sem sýndi fram á, að fyrir hverja krónu sem sett er í meðferð þá sparast 6 krónur. Þarna var framreiknaður kostnaður eins og komur á bráðamóttökur sjúkrahúsa, skemmdarverk, afbrot, fangelsi ofl.
Heilsuhagfræðingar hafa einnig reiknað út að 35 ára gamall maður sem fer í meðferð og snýr aftur til vinnu nær að greiða fyrir meðferð 16 – 40 annarra einstaklinga með sköttum sínum. En málið snýst ekki bara um krónur og aura, heldur líka um velferð okkar og lífsgæði. Gríðarlegt álag og streita getur fylgt áfengis og vímuefnasjúkdómnum fyrir fjölskyldur landsins þegar ekki fæst viðeigandi aðstoð. Hvernig metum við það böl til fjár?
Það hafa farið í meðferð hjá SÁÁ yfir 20.000 Íslendingar og meirihluti þessa fólks er við góða heilsu í dag. Aðsókn og þörf á meðferð er ekki að breytast og ef skera á niður framlög til sjúkrahússins Vogs verður þetta ekki hægt. Það er búið að skera það mikið síðustu misserin á Vogi að nú að óbreyttu er bara hægt að draga úr þjónustu.
Það er sannfæring okkar að þetta er ekki það sem fólkið í landinu vill. |