SÁÁ
9. febrúar 2010 / 10:06
Senda á Facebook

SÁÁ = Umhverfisvæn stóriðja

Þráinn Bertelsson, þingmaður og rithöfundur

 

„SÁÁ hefur valdið straumhvörfum í lífi tugþúsunda, bjargað fleiri mannslífum en tölu verði á komið.“

  

Áfengis- og vímuefnavandi er ekki aðeins stærsta heilbrigðisvandamál vestrænna þjóða heldur jafnframt þjóðfélagslegt mein sem teygir anga sína inn á flest svið samfélagsins, jafnvel inn í hverja einustu fjölskyldu.

 

SÁÁ hefur valdið straumhvörfum í lífi tugþúsunda, bjargað fleiri mannslífum en tölu verði á komið og kveikt ljós og von þar sem áður var myrkur og örvænting. Núna gengur þjóðin gegnum tímabundna fjárhagserfiðleika sem kalla á hagsýni og aðhald. Hagsýni felst í því að standa vörð um það besta og nauðsynlegasta en skera niður eða fresta því sem ekki er bráðnauðsynlegt, arðbært eða atvinnuskapandi.

 

Frá sjónarhóli hagkvæmninnar má segja að SÁÁ sé verksmiðja sem framleiðir heilbrigða þjóðfélagsþegna, dugmikið og reglusamt vinnuafl og afkastamikla skattborgara. Hráefnið í framleiðsluna eru mestan part sjúklingar sem ekki eru vinnufærir, þar á meðal fastir viðskiptavinir félagsmálastofnana, sjúkrahúsa, dómskerfis, fangelsa og líknarfélaga auk ungmenna sem lent hafa á glapstigum.

 

Þetta er umhverfisvænn verksmiðjurekstur sem mengar ekki heldur bætir andrúmsloft okkar og umhverfi. Rekstur sem er bráðnauðsynlegur, þjóðfélagslega arðbær og atvinnuskapandi.

 

Þessu til viðbótar byggist starf SÁÁ á mannúðarstefnu, heiðarleika og kærleika - gildum sem mikil þörf er fyrir og eftirspurn eftir í samfélaginu. Ekki síst á erfiðum tímum. 

 

Meðan við vinnum okkur út úr kreppunni skulum við gæta vel að þeim verkfærum sem við þurfum helst á að halda. SÁÁ er umhverfisvæn stóriðja.

 

Þráinn Bertelsson

 

grein úr SÁÁ blaði des 2009

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...