SÁÁ
23. desember 2009 / 14:15
Senda á Facebook

Stöndum vörð um þá sem minna mega sín

Þórarinn Tyrfingsson, læknir

 

„Loka þarf Staðarfelli og göngudeildinni á Akureyri eða fækka komum á Sjúkrahúsið Vog um 500 og leggja þar niður sérstaka unglingadeild.“

 

Þórarinn Tyrfingsson skrifar

 

Sjúkrarekstur SÁÁ er stærstur hluti af rekstri SÁÁ og allur skráður á sér kennitölu og haldið aðgreindum frá öðrum rekstri samtakanna. Þetta er rekstur Sjúkrahússins Vogs, endurhæfingarheimilanna á Vík og í Staðarfelli og göngudeildunum í Reykjavík og á Akureyri. Reksturinn er endurskoðaður af ríkisendurskoðun og í athugasemdum frá þeirri stofnum má lesa að SÁÁ hefur borgað með rekstrinum allt frá árinu 1991. Með öðrum orðum: SÁÁ hefur borgað hallann meðan halli opinberra heilbrigðisstofnanna er greiddur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna, oft með aukafjárveitingum. Slíkar aukafjárveitingar hefur SÁÁ ekki fengið svo elstu menn muni.

 

Við hrunið jukust skuldir SÁÁ og tekjurnar drógust saman. Þrátt fyrir það greiðir SÁÁ 15 prósent af sjúkrarekstrinum þetta árið. Rétt er að taka það fram að góðærið fór að mestu fram hjá sjúkrarekstri SÁÁ. Stöðugildi í sjúkrarekstrinum voru um 90 og héldust óbreytt á árunum 2001- 2008. Í dag eru stöðugildin 85.

 

Heilbrigðisráðuneytið stendur ekki við gerða þjónustusamninga og hefur minnkað framlög til sjúkrareksturs SÁÁ um 3,4% á þessu ári og fyrirhugað er að minnka framlögin enn frekar frá því sem nú er eða um 6,7% á árinu 2010. Samanlagt verður þetta 14% skerðing sem kemur til framkvæmda á tveimur árum.

 

Ef fyrirhugaður flatur niðurskurður gengur eftir verður óhjákvæmileg mikil minnkun og eðlisbreyting á sjúkrarekstri SÁÁ. Loka þarf Staðarfelli og göngudeildinni á Akureyri eða fækka komum á Sjúkrahúsið Vog um 500 og leggja þar niður sérstaka unglingadeild. Hvort tveggja mun auka verulega á kostnað sjúkrahúsanna í landinu, lögreglunnar og félagsþjónustu. Ekkert mun sparast, fjármunum veður sóað.

 

Við þetta verður meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga kippt um 20 ár aftur í tímann. Slíkt má aldrei verða því okkar er að stand vörð um þá sem minna mega sín og byggja upp nýtt og betra Ísland.

 

Höfundur er læknir og formaður SÁÁ

 

 

Sjá einnig SÁÁ blaðið 3. tbl 2009

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.