SÁÁ
14. febrúar 2010 / 23:09
Senda á Facebook

Bjargvættur í íslensku þjóðfélagi

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti

 

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, óskar þess að starfsemi SÁÁ dragist ekki saman um of á þeim þrengingar tímum sem nú ganga yfir.

 

Engum getur blandast hugur um að SÁÁ – Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann – hefur verið mikill bjargvættur í íslensku þjóðfélagi í rúma þrjá áratugi. Þessi vönduðu og einörðu samtök hafa á meðferðarstofnunum sínum og með sjálfboðavinnu einstaklinga hvergi látið deigan síga við að leiðbeina sjúku fólki til sjálfshjálpar, fólki sem er fjötrað í hlekkjafesti vímuefna. Starfsfólk SÁÁ og sjálfboðaliðar AA-hreyfingarinnar eru stöðugt að, reiðubúnir allar stundir að veita nauðsynlega aðstoð, og fundir eru skipulagðir víðsvegar um allt land hvern einasta dag allan ársins hring. 

 

Þrengingatímar ganga um þessar mundir yfir Íslendinga og bitna illa á þeim, sem minnst mega sín og eiga í veikindum af ýmsum toga. Það er því í mörg horn að líta hjá stjórnvöldum og hjálparstofnunum, sem hafa það hlutverk með höndum að veita sjúkum læknishjálp og styrkja þá til sjálfshjálpar, sem eiga slíkar batahorfur.

 

Í andstreymi er viðbúið að sumum verði á að flýja á „náðir“ áfengis eða annarra vímugjafa, þannig að SÁÁ og aðrar meðferðarstofnanir verða ef til vill að reiða sig enn meira en áður á AA-hreyfinguna og hinn ómælda stuðning þess mikla fjölda kvenna og karla, sem hafa náð þeim sigri að halda sig frá áfengi og öðrum vímuefnum. SÁÁ  kynni því í meira mæli en áður að þurfa að fá virka AA-félaga til að leiða þá sem útskrifast inn í AA-hreyfinguna og fylgjast með þeim nýliðum uns þeir  hafa fundið sér samastað þar. Ríkari áhersla á þetta skipulag ætti að fækka endurkomum inn á meðferðarstofnanir og þannig nýttust rýmin þar betur en til þessa.

 

Það er gott til þess að vita að önnur eins öndvegishreyfing og SÁÁ skulu vera  stöðugt að verki á Íslandi og að hún eigi sér voldugt bakland í AA- samtökunum,  sem hefur tekið við áfengis- og vímuefnasjúku fólki á batavegi frá meðferðarstöðum í meira en hálfa öld. 

 

Það er einlæg ósk okkar allra, að starfsemi SÁÁ þurfi ekki að draga saman  seglin um of á meðan íslensk þjóð er að vinna sig út úr erfiðleikum.

 

Megi framtíðarheill fylgja öllu því góða fólki sem tengist SÁÁ og AA. 

 

Vigdís Finnbogadóttir

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...