SÁÁ
3. desember 2009 / 08:45
Senda á Facebook

Sýnum stuðning okkar í verki

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson

 

„SÁÁ hefur verið tugþúsundum Íslendinga öflug björgunarsveit.“

 

Sum samtök verða svo áhrifarík að þau breyta sýn heillar þjóðar, ná með verkum sínum að skapa nýja von, leggja grunn að betra lífi.

 

SÁÁ hefur verið tugþúsundum Íslendinga öflug björgunarsveit, leitt einstaklinga á farsælar brautir, forðað þeim frá örvæntingu og margvíslegum þjáningum, en líka kveikt gleði í hjörtum ættingja og vina, barna, maka, foreldra, fjölskyldna þeirra sem leituðu sér lækninga.

 

Á vettvangi samhjálparinnar er SÁÁ í senn brautryðjandi og bakhjarl, samfélag lækna, sérfræðinga og starfsfólks sem ætíð er reiðubúið að koma til bjargar.

 

Nú ríður á að við sýnum líka stuðning okkar í verki.

 

Ólafur Ragnar Grímsson

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.