SÁÁ
22. janúar 2010 / 09:12
Senda á Facebook

Takk fyrir mig, án ykkar hefði ég sennilega dáið

Guðmundur Týr Þórarinsson

 

Guðmundur Týr, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, þekkir af eigin raun starfsemi SÁÁ. Hann hefur verið edrú í átján ár og rekur sjálfur sérhæft meðferðarheimili fyrir ungt fólk. Þegar Mummi hugsar um SÁÁ er honum, eins og þúsundum annarra Íslendinga, þakklæti efst í huga.

 

Hvers virði er það að fá að standa í lappirnar?

 

Árið er 1980 og níu ár þar á undan varð ég fyrir stöðugu áreiti frá vinum og vandamönnum þar sem þau fullyrtu að líf mitt væri ekki alveg í lagi og tómt tjón hlytist af öllu sem ég kæmi nálægt. Þau sögðu mér að ég þyrfti einhverskonar hjálp og ég væri að drepa mig og jafnframt drösla fjölda manns með mér í gröfina.

 

Þá vissi ég ekkert hvern fjandann þetta lið væri eiginlega að fara. Jú, ég vissi það svo sem að ég mætti alveg tóna niður neysluna pínulítið, þá meina ég pínulítið. Vera kannski bara fullur og dópaður um helgar og þá yrði ég kannski látin í friði. En hugsaði með mér: „Djöfuls kjaftæði, ég er ekki svona aumingi sem þarf hjálp við hætta.“

 

Silungapollur og svo Sogn

 

Á endanum gafst ég upp fyrir nöldrinu í þessu helvítis pakki sem var stöðugt að ergja mig með þessu röfli um að ég væri einhverskonar alki ... eða eitthvað ... hvað vissu þau svo sem? En ég þáði svo loks að vera keyrður uppá einhvern stað sem þá hét Silungapollur og rekin af einhverju SÁÁ og var staðsett rétt fyrir utan borgarmörkin.

 

Hugsaði með mér: „Best að rúlla þessu bara upp og fá heilbrigðisstimpil til að sanna heilbrigði mitt, veifa stimplinum svo framan í þetta lið sem var alltaf með leiðindi og skildi nákvæmlega ekkert.“

 

Ég man eftir fyrsta deginum inni á Silungapolli, allir svo næs og buðu mig velkomin. Ég þekkti mig á staðnum af því ég hafði verið þarna sem barn og í minningunni var staðurinn miklu stærri einhvern veginn.

 

Þarna inni með hjálp góðra manna hófst líf mitt fyrir alvöru og í fyrsta sinn gat ég horft í spegil án þess að kúgast yfir sjálfinu mínu. Kláraði Silungapollinn og fór uppá Sogn í framhaldsmeðferð sem ég og kláraði fullur af þakklæti og vilja til góðra verka.

 

Fyllist þakklæti

 

En edrú sagan mín var rikkjót næstu þrettán árin, af þeirri einföldu ástæðu að innst inni vildi ég ekki taka ábyrgð á mér og takast á við allann sársaukann og vonbrigðin innra með mér. Árið 1993 fór ég nær dauða en lífi enn og aftur og bað SÁÁ um hjálp sem var auðfengin eins og öll hin skiptin. Tæpum átján edrú-árum síðar, þegar ég lít til baka og hugsa til þessa fólks hjá SÁÁ sem tók á móti mér aftur og aftur með útbreiddan faðminn og tilbúið að gefa mér enn einn sénsin, fyllist ég þakklæti fyrir að þau hafi ekki gefist upp á mér.

 

Ég verð ævinlega þakklátur og segi því: „Takk fyrir mig, án ykkar hefði ég sennilega dáið.“

 

 

Sjá SÁÁ blaðið 3.tbl 2009 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...