SÁÁ
1. febrúar 2010 / 16:20
Senda á Facebook

Hin heimska hönd hagræðingarinnar

Grímur Atlason

 

Grímur Atlason, sveitastjóri Dalabyggðar skrifar: 

 

Jólin 1978 voru öðruvísi en hjá fjölmörgum fjölskyldum á Íslandi. Freeportferðir undangenginna missera og stofnun SÁÁ skömmu áður höfðu sagt upplausninni, niðurlægingunni og sundruðu fjölskyldunum stríð á hendur. Bakkus hafði loksins fengið verðugan andstæðing á Íslandi. Nú eru yfir 30 ár liðin og þúsundir einstaklinga og fjölskyldna hafa öðlast nýtt líf m.a. fyrir tilstuðlan starfsemi SÁÁ. Persónulega á ég SÁÁ margt að þakka og mér hlýnar um hjartaræturnar þegar ég horfi yfir Hvammsfjörðinn á gamla húsmæðraskólann á Staðarfelli.

 

Hörmungar alkóhólismans kosta þjóðarbúið milljarða árlega – þá er ekki settur verðmiði á það andlega tjón sem sjúkdómurinn veldur. Það er gríðarlega mikilvægt að starfsemi SÁÁ haldi áfram af sama krafti og fyrr. Hin heimska hönd hagræðingarinnar má ekki taka yfir þó það séu vissulega erfiðir tímar. Það hefur líklega aldrei verið mikilvægara en einmitt nú að veita öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir alkóhólista og aðstandendur þeirra. Starfsemi SÁÁ er á heimsmælikvarða – við megum ekki glata henni. 

 

Sjá SÁÁ blaðið 3.tbl 2009

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...