SÁÁ
10. febrúar 2010 / 08:42
Senda á Facebook

Klappstýra SÁÁ og AA

Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur

 

Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur skrifar:

 

Af nánustu vinum mínum og fjölskyldu get ég í fljótu bragði talið fimm manneskjur sem hafa náð lífi sínu á réttan kjöl eftir meðferð á Vogi og áframhaldandi starf innan AA samtakanna. Þetta fólk gerir gagn úti í samfélaginu og hjálpar öðrum í stað þess að skrimta í óhamingju og við bága heilsu með tilheyrandi áhyggjum og hjartasorg ástvina þeirra.

 

Sjálf er ég orðin hálfgerð klappstýra SÁÁ og AA eftir að hafa séð kraftaverkin sem þar gerast á hverjum degi. Alkóhólistar eru fólk sem þarf aðstoð og stuðning, alveg eins og við hin, nema hvað þau þurfa sérhæfða hjálp til að hætta að drekka og lyfja sig til dauða.

 

Sjúkrahúsið Vogur er stofnunin sem veitir þá lífsbjörg og ef ekki væri fyrir Vog væru mun fleiri á ógæfulegu flakki inn og út af öðrum stofnunum sem ekki geta veitt þeim raunverulega hjálp. SÁÁ og Vogur bjarga mannslífum.

 

Sjá SÁÁ blaðið 3.tbl 2009

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...