Slysavarnarfélagið

SÁÁ er slysavarnafélag. Vogur er björgunarskipið sem samtökin gera út. Og á þessari stundu troða hundruðir karla og kvenna örvæntingarfullan marvaða yfir hyldýpi sem tekur til sín mannslíf á hverju ári, í hverjum mánuði, í hverri viku og jafnvel daglega. Alkóhólisminn spyr hvorki um aldur né stétt. Hann bara eyðileggur og drepur þá sem fyrir honum verða. Það er svo einfalt.
Stefán Máni rithöfundur
sjá SÁÁ-blaðið 3.tbl 2009
- 11.2.2010 22:53:04
Sammála Stefáni,virkur alki eitrar og skemmir allt sem hann kemur nálægt,eiðileggur allt og á endanum er eina lausnin sem hann fær,gröfin,ef hann gerir ekkert í sínum málum og þiggur ei hjálp.
Karl B Þórðar.