Mikið fyrir lítið

Það er kannski ósmekklegt að nota útjaskaða auglýsingafrasa um jafn alvarlegt mál og meðhöndlun áfengis- og fíkniefnasjúklinga en ég geri það nú samt. „Mikið fyrir lítið“ lýsir nefnilega vel árangursríkri meðferð hjá SÁÁ. Það er ekki bara að fárveikur og gagnslítill einstaklingur verði heill og virkur samfélagsþegn á ný heldur endurheimtir oftast heil fjölskylda – börn og fullorðnir – heilsu og hamingju í kaupbæti. Er það ekki „góður díll“ fyrir samfélagið – heilsa margra fyrir lækningu á einum? Að skera niður meðhöndlun á einkum og sér í lagi ungum áfengis- og fíkniefnasjúklingum er ekki sparnaður fyrir samfélagið – það er sóun á verðmætum þess.
Páll Magnússon útvarpsstjóri