SÁÁ
18. desember 2009 / 08:30
Senda á Facebook

Vogur verður að vera til

Freyr Eyjólfsson

 

Freyr Eyjólfsson dagskrárgerðarmaður:

 

Ég hef verið blankur. Skítblankur nánast allt mitt líf. Aldrei átt mikla peninga og oft þurft að spara. En ég þarf að eiga sjúkrakassa á heimilinu ef ég meiði mig. Og ef ég verð lasinn þá vil ég geta treyst á hjálp frá öðrum; veit líka að mér ber skylda að hjálpa öðrum í sömu sporum.


Peningakreppan á að vera lærdómur fyrir okkur. Kannski pínulítil meðferð fyrir þjóðina að hugsa um hin einu sönnu gildi í lífinu. Að hjálpa öðrum - vera til staðar fyrir aðra. Hjálpa hinum veiku. Það er það sem gerir okkur mennsk.

 

Við vitum að Vogur þarf og verður að vera til. Gerum ALLT til þess að svo verði.

 

 

SÁÁ blaðið, 3.tbl 2009

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.