SÁÁ
21. desember 2009 / 11:23
Senda á Facebook

Reikningskúnstir rekast á raunveruleikann

 

Samninganefnd heilbrigðisráðherra og SÁÁ gerðu í lok árs 2007 með sér þjónustusamning um vímuefnameðferð fyrir sjúkratryggða einstaklinga á sjúkrahúsinu Vogi. Samningurinn er til fjögurra ára og gildir frá 1. janúar 2008 og lýkur 31. desember 2011.

 

Ríkið greiðir fyrir þjónustu upp að ákveðnu marki en munnlegt samkomulag er um að SÁÁ veiti umtalsvert meiri þjónustu en ríkið greiðir fyrir. Má þar helst nefna að ríkið greiðir aðeins fyrir um 1600 innlagnir af um 2200 innlögnum á Vog árlega á samningstímanum.

 

Þrátt fyrir augljósan hagnað sem ríkið hefur af þessu fyrirkomulagi þar sem SÁÁ niðurgreiðir lögbundna heilbrigðisþjónustu fyrir sjúkratryggða einstaklinga, hefur heilbrigðisráðherra ekki efnt samninginn af sinni hálfu, heldur lækkað umsamin framlög á árinu 2009 um 3.4% og hefur boðað 6-7% lækkun á næsta ári.

 

Einhliða ákvörðun ráðherra og alger skortur á samráði er dapurleg staðreynd. Þá er engin heimild í lögum eða ákvæði í gildandi samningi milli aðila sem heimilar ráðherra að breyta þjónustusamningi. Enda hefur SÁÁ krafist þess að staðið verði við samninginn eftir efni hans.

 

Það er ekki flókin reikningskúnst að sjá í hendi sér, að ef ríkið vill fækka „sínum“ innlögum á Vog að þá er brostinn grundvöllur fyrir fjölda innlagna í boði SÁÁ. Einhliða breytingar ráðherra á gildandi þjónustusamningi gætu haft þau áhrif að grundvöllur meðferðarkerfis SÁÁ molnar í sundur. Raunveruleg fækkun innlagna á sjúkrahúsið Vog yrði ekki í neinu réttu hlutfalli við prósentuútreikninga ráðuneytisfólks, sem hefur vanist því árum saman að líta á framlag SÁÁ til heilbrigðisþjónustu sem sjálfsagðan hlut og sína eign.

 

Arnþór Jónsson tónlistarmaður

 

sjá SÁÁ blaðið, 3.tbl 2009

 

 

 

 

Til baka...
weiXRzjaGxxDot
- 25.4.2011 11:41:57 You're the graetest! JMHO
PtXiXUDwGKI
XaxFvCuPNgyIt
JXSRbz , [url=http://dzizvpndatnj.com/]dzizvpndatnj[/url], [link=http://ldmqzfmwwlcq.com/]ldmqzfmwwlcq[/link], http://iofhjyvuamhu.com/
YbGmPObMuDudYjsSpU
psAqYGHfRTF
- 28.4.2011 21:57:20 PbHCgS , [url=http://yxfwqijlhkdh.com/]yxfwqijlhkdh[/url], [link=http://hoczcgyvxdlf.com/]hoczcgyvxdlf[/link], http://reasgxbvfhsg.com/
BBszfbgoqylwP
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...