SÁÁ
3. janúar 2010 / 21:53
Senda á Facebook

Áramótapistill

Þórarinn Tyrfingsson

 

Um leið og ég óska öllu SÁÁ fólki og landsmönnum farsældar á árinu 2010 hvet ég ykkur öll til að berjast með oddi og egg fyrir velferð og hagsmunum áfengis- og vímuefnasjúklinga á Íslandi. Það verður best gert með því að leggja SÁÁ lið á komandi ári. Niðurskurður á ríkisframlögum á undanförnum tveimur árum og fjárhagserfiðleikar í þjóðfélaginu hafa kippt okkur mörg ár aftur í tíman. Við þessar aðstæður er aðeins tvennt í stöðunni. Lyppast niður og láta slíkt draga úr okkur allan samtakamátt og eldmóð eða hefja nýja sókn.

 

Við höfum flest verið í svipaðri stöðu áður og sum með okkar eigin líf. Fyrir okkur er uppgjöf óhugsandi og áframhaldandi barátta eina leiðin. Við eigum góðan og fagran málstað að verja og munum blása til nýrrar sóknar á komandi ári.

 

Ég mun á næstunni ásamt framkvæmdastjórn SÁÁ kalla ykkur til starfa við ný verkefni sem blasa hvarvetna við. Við þurfum að safna nýjum félögum og meiri fjármunum. Við þurfum að ná betur til þeirra sem eru á aldrinum 20-40 ára og fá þá með okkur í starfið. Við munum láta enn meira til okkar taka í þjóðfélagsumræðunni um forvarnir og meðferð áfengis og vímuefnavandans á næstunni.

 

Þórarinn Tyrfingsson

 

 

Til baka...
GÁFULEGUR
- 20.1.2010 22:55:40 Það er nú svo leiðis í lífinu að það koma alltaf bar8menn þessi málstaður eða lausn erþannig eðlis að það má aldrei slaka á verðinum hvorki gagnvart sjúkdómnum eða forvörnum.Ég hugsa með hrillingi ef svo staða komi upp að draga þurfi úr starfsemi SÁÁ eins og við vitum og þekjum þá eru alkólistar míklír DISNEYHEILAR.
Sláum í gráumerina ogstöndum saman því þar liggur mátturinn.Ásgeir Jóhann
gMAeosuKjjVtEhKNNK
Haha, shouldn't you be charging for that kind of knwoldege?!
UPWYHyTsFlzMRCsx
HIeEJIwVEiESdMhKUX
- 20.10.2011 12:12:20 EqrYQy , [url=http://zrspjtabatwd.com/]zrspjtabatwd[/url], [link=http://ygsrfcujogxc.com/]ygsrfcujogxc[/link], http://oscewqmnsozy.com/
dcWrDiPFvCD
trPssQgRoY
GeeWHM , [url=http://mjovbgdhmkdc.com/]mjovbgdhmkdc[/url], [link=http://efdrxqejrclu.com/]efdrxqejrclu[/link], http://xlxmvrrqeevw.com/
OqrAESDTuHdtHdvVK

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.