3. janúar 2010
Horfur í sjúkrarekstri SÁÁ

SÁÁ þarf að greiða 75-80 milljónir króna með sjúkrarekstrinum árið 2009 og horfur eru slæmar fyrir árið 2010.
Baráttu SÁÁ fólks gegn niðurskurði ríkisins til meðferðarinnar SÁÁ árið 2010 er lokið. SÁÁ félagar stóðu sig afskaplega vel. Létu þingmenn vita af sínum vilja og söfnuðu á stuttum tíma yfir 20 þúsund undirskriftum. Hefðu eflaust getað safnað miklu fleiri undirskriftum. Lítið hafðist upp úr krafsinu sem sýnir að alþingismenn virðast ekki hlusta á fólkið í landinu og þá sem hafa sérþekkingu og reynslu.
Það er ekki gert ráð fyrir nægilegum fjármunum til viðhalds, endurnýjun tækja eða uppbyggingu til framtíðar í sjúkrarekstrinum þessa stundina. Áætlanir fyrir árið 2009 gerðu ráð fyrir að erfiðleikarnir væru tímabundnir en ekki komnir til að vera. Auk þessa má áætla að töluverð kostnaðaraukning hafi orðið á seinni hluta ársins 2009 sem er að nokkru dulin í heildartölum ársins.
Á árinu 2010 kemur til veruleg skerðing á framlögum frá heilbrigðisráðuneyti (líklega um 60 milljónir). Það mun auka verulega á vanda í rekstri sem stendur veikur fyrir og búast má við frekari skerðingu af hálfu ríkisins á næstu árum.
Gerð hefur verið áætlun sem sýnir að SÁÁ þarf að borga með sjúkrarekstri 150.600.000 krónur að óbreyttu. Því þarf að spara 70-80 milljónir á árinu 2010
Slíkur sparnaður næst ekki nema með því að minnka þjónustuna og gera eðlisbreytingar á meðferðinni.
Þórarinn Tyrfingsson