SÁÁ
4. mars 2010 / 09:02
Senda á Facebook

Varð heilbrigð að nýju

Glódís Karin E. Hannesdóttir leikskólakennari

 

Ég var 25 ára þegar að mig rak á fjörurnar til SÁÁ. Í stuttu máli gat ég notast við mjög fátt úr minni fortíð og fékk alveg nýjan grundvöll undir líf mitt. Það var langur vegur og mikil vinna með sérfræðingum að finna mig „heilbrigða að nýju“ en ég hafði fengið fjölskyldusjúkdóminn nánast í vöggugjöf.

 

Mér auðnaðist með guðs hjálp og góðra manna að finna sjálfa mig fyrir þann tíma er ég varð sjúkdómnum að bráð. Sjúkdómurinn breytir persónuleika fólks og ég þurfti að finna sjálfa mig langt aftur í tímann. Grundvöllinn fyrir því að ég fann sjálfa mig var lagður hjá SÁÁ árið 1985.

 

Ég kláraði nám árið 1989 og útskrifaðist sem leikskólakennari. Ég fæddi og ól upp þrjú börn og á núna fjögur yndisleg barnabörn. Það er ekki alltaf hægt að mæla batann í því að skila sér á almennan vinnumarkað. Það er ekki hægt í mínu tilfelli. Ég á kærleiksríkar og velviljaðar tilfinningar til fjölskyldu minnar og alls samfélagsins. Það er minn bati.

 

Glódís Karin E. Hannesdóttir leikskólakennari

 

 

Sjá SÁÁ blaðið, 3.tbl 2009

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.