SÁÁ
16. mars 2010 / 09:12
Senda á Facebook

Við erum til staðar allan sólarhringinn

Þóra Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur

 

Þóra Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur vinnur á Vogi. Hún upplifir kraftaverkið á hverjum degi. Þóra veit hversu mikilvægt það er að við stöndum vörðum meðferðarstarfið í landinu. Hún segir það gefandi og fjölbreytt starf að hjúkra alkóhólistum og fíklum.

 

Hjúkrun alkóhólista og fíkla

Það er mjög gefandi og fjölbreytt starf að vinna við að hjúkra alkahólistum og fíklum. Það verða miklar breytingar á líðan sjúklingsins á þeim 10 dögum sem hann dvelur á Vogi. Fyrstu dagarnir geta verið erfiðir meðan verstu fráhvarfseinkennin eru að ganga yfir, s.s. skjálfti, svefntruflanir, kvíði og almenn vanlíðan. Þá er hlutverk okkar á hjúkrunarvaktinni að skapa rólegt og traustvekjandi umhverfi þar sem sjúklingarnir geta farið í gegnum fráhvarfseinkennin og haldið reisn sinni. Við erum til staðar allan sólarhringinn og fylgjumst náið með líðan sjúklingsins, gefum lyf, veitum upplýsingar um gang mála og styðjum sjúklinginn og hvetjum eftir þörfum.

 

Sjúklingar frá 16-80 ára

Sjúklingahópurinn er mjög fjölbreyttur enda er aldursbilið allt frá 16 – 80 ára. Þannig að hjúkrunarverkefnin eru frá því að minna unglinga á að fara í morgunmat yfir í það að hvetja og styðja aldrað fólk sem gengur við göngugrind og allt þar á milli.

 

Árangur hjá sprautufíklum

Sérstaklega ánægjulegt er að taka þátt í því að þjónusta þá einstaklinga sem eru í viðhaldsmeðferð við ópíumfíkn. Það koma 60 – 64 einstaklingar og sækja lyf hingað á Vog. Sumir daglega aðrir einu sinni í viku. Þvílík breyting á þeim einstaklingum á ekki löngum tíma. Eftir að hafa farið í innliggjandi meðferð hafa þeir náð að skapa sér traust í lífinu, náð að byggja sig upp og losnað undan ánauð sprautufíknar. Með glampa í augum og bros á vör mæta þeir hingað og sækja viðhaldsmeðferðarlyf. Það er meðferðin sem virkar, þeir eru að fá rétta þjónustu. Um það verðum við öll að standa vörð.

 

 

Sjá SÁÁ blaðið 3.tbl 2009

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...