SÁÁ
26. febrúar 2010 / 09:41
Senda á Facebook

Hvert fara fjármunirnir?

Pétur T. Gunnarsson

 

Pétur T. Gunnarsson: „SÁÁ og Vogur hafa hjálpað hundruðum (ef ekki þúsundum) einstaklinga úr viðjum áfengis og annarra vímuefna.“

 

Hvað fékk Eimskip marga milljarða afskrifaða? Hvað fékk Toyota marga milljarða afskrifaða? Hvað fékk Vífilfell marga milljarða afskrifaða? Þarf ekki að skera niður í dómskerfinu? Þurfa ráðamenn ekki að borga fyrir fiskveiði í Elliðaánum? Hvert fóru arðgreiðslur fyrirtækja, fjármálastofnana og eignarhaldsfélaga undanfarin ár? Mér hryllir við að heyra slíkar spurningar.

 

Hvað er það sem ég heyri svo í kjölfarið, að það þurfi að skera niður hjá SÁÁ og Vogi? Það getur varla verið að það muni svo miklu um slíka smáaura miðað við ofangreint. Það þarf ekki einu sinni að ræða slíkan möguleika. Hann er gjörsamlega fráleitur. Kostnaður samfélagsins sem fylgir slíku er margfalt meiri en ávinningur niðurskurðarins.

 

SÁÁ og Vogur hafa hjálpað hundruðum (ef ekki þúsundum) einstaklinga úr viðjum áfengis og annarra vímuefna. Það fólk hefur þannig fengið aftur tækifæri á að taka virkan þátt í samfélaginu, aflað sér menntunar, eflt atvinnumarkaðinn og skilað tilbaka gríðarlegum tekjum í kassa ríkis og sveitarfélaga í formi skatta og ýmissa gjalda.

 

Virkur einstaklingur í samfélaginu getur auðveldlega skilað um 100-125 þúsundum tilbaka í samfélagið í hverjum mánuði í formi launaskatts og virðisaukaskatts af neysluvörum. Þá eru ótaldar vaxtatekjur vegna lána, fasteignagjöld og svo framvegis. Þetta gerir 1200-1500 þúsund árlega á hvern einstakling. 300 einstaklingar skila þannig auðveldlega 450 milljónum árlega til ríkis og sveitarfélaga.

 

Þarf eitthvað að ræða þetta? Nei, ég hélt ekki.

 

 

Sjá SÁÁ blaðið 3. tbl 2009

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.