SÁÁ
25. janúar 2010 / 06:27
Senda á Facebook

Nú er vá fyrir dyrum

Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður

 

Ef ég yrði fyrir því að detta og brjóta nokkur bein fengi ég meðhöndlun færustu lækna og sérfræðinga og að því búnu yrði mér trillað í endurhæfingu, mér nánast að kostnaðarlausu. Allt hluti af lögboðinni heilbrigðisþjónustu. SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, hafa frá stofnun haft á að skipa færustu sérfræðingum í meðhöndlun áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandanda þeirra. Með þrautseigju og faglegan metnað að leiðarljósi hefur SÁÁ lyft grettistaki í meðferð þess stóra þjóðfélagshóps sem ánetjast hefur áfengi og öðrum vímuefnum. Oftar en ekki hafa samtökin þurft að glíma við fjársvelti, stundum svo alvarlegt að þurft hefur að loka eftirmeðferðastofnunum tímabundið. SÁÁ er ekki ríkisstofnun en hefur notið fjárframlaga frá ríkinu og í gildi er þjónustusamningur við sjúkrasamlag ríkisins.

 

Nú er vá fyrir dyrum. Uppi eru áætlanir um að skera fjárframlög ríkisins til SÁÁ niður um 70-100 milljónir. Afleiðingar slíks niðurskurðar verða grafalvarlegar fyrir samfélagið allt.

 

Ég skora á stjórnvöld að að standa vörð um starfsemi SÁÁ og kvika í engu frá stuðningi sínum við samtökin.

SÁÁ bjargar mannslífum.

 

Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...