SÁÁ
26. janúar 2010 / 09:55
Senda á Facebook

Um sparnað

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur

 

Eftirfarandi staðreyndir þurfa að vera þeim ljósar sem vilja spara. Samkvæmt tölum sem ég hef aðlagað fyrir Ísland, gildir eftirfarandi: Ef 20 menn fara í meðferð og 2 af þessum tuttugu varða edrú það sem eftir er, þá er þjóðhagslegur hagur af því að þessir tveir eru þurrir til æviloka meiri en nemur kostnaðinum við meðferð allra 20. Reynslan sýnir að af hverjum 20 sem fara í meðferð, þá eru 6-7 sem verða edrú efir það. Þetta er sum sé góður business fyrir oss öll. 

 

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.