SÁÁ
26. janúar 2010 / 10:11
Senda á Facebook

Hvað skiptir mestu máli í lífi okkar?

Hannes Steindórsson fasteignasali

 

Ég vinn við að selja fasteignir og hef gert síðastliðin 5 ár, starfið er gríðarlega skemmtilegt vegna þess að það fylgir því alltaf mikil gleði að flytja í nýtt húsnæði. Á síðustu misserum hefur starfið breyst að því leyti að fólk er ekki eingöngu að selja í gleði heldur líka í sorg, fólk í fjárhagsvandræðum þarf að komast út úr skuldum og svo framvegis.

 

Margar myndir kreppunnar koma fram í fasteignageiranum og margir eru í vandræðum en alls ekki allir. Íslendingar spá mikið í hvað þeir eiga í fasteignum sínum þó svo að þeir séu ekkert að fara að selja, fasteignaverð hefur farið upp og niður síðustu 30 ár og kemur til með að gera það næstu 30 árin. 

 

En hvað skiptir mestu máli? Viðskiptavinur hjá mér skuldar 60 milljónir í 30 milljón króna eign og var að meta það með sjálfri sér hvað skipti hana máli í lífinu. Hún spurði sjálfa sig hvort hún væri til í að losna við allar sínar skuldir í skiptum fyrir að dóttir hennar myndi missa framan af einum fingri? Svarið var einfalt: Hún myndi aldrei skipta út skuldum sínum fyrir svo lítið sem grátur hjá dóttur sinni.

 

Ég viðurkenni að þetta er furðulegur samanburður en þegar maður metur stöðuna og pælir í því hvað skiptir máli þá verða peningamál smámál í samanburði við velferð barna okkar og fjölskyldna.

 

Pælum í því hvað skiptir okkur raunverulega máli. Við megum ekki skemma þá ótrúlegu uppbyggingu sem SÁÁ hefur staðið fyrir síðustu þrjátíu ár af því að við eigum tímabundið í fjárhagsvandræðum. SÁÁ og Vogur er fyrir fjölskyldurnar í landinu. Verjum það sem skiptir máli.

 

Hannes Steindórsson fasteignasali

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.