SÁÁ
16. febrúar 2010 / 08:28
Senda á Facebook

Hugleiðingar læknis á Vogi

Valgerður Rúnarsdóttir, læknirValgerður Rúnarsdóttir veltir fyrir sér mikilvægum spurningum um meðferðarstarfið. 

  • Hverju get ég deilt með ykkur?
  • Eigin reynsla af fíknsjúkdómnum, meðferð hjá SÁÁ  og stundað sjálfshjálparsamtök  fyrir alkahólista í rúm 20 ár
  • Starfað alfarið við fíknlækningar í rúm 9 ár og sinnt nokkrum þúsundum sjúklinga
  • Komið að margbreytilegu meðferðarstarfi SÁÁ í þverfaglegu teymi
  • Ég veit að meðferð virkar
  • Ryðja þarf enn frekar hindrunum úr vegi, til að þeir leiti sér aðstoðar sem þurfa, vegna þessa algenga og alvarlega sjúkdóms

****************************

Ég veit að meðferð við fíknsjúkdómi virkar. Eins og meðferðir við mörgum öðrum langvinnum sjúkdómum. Fagleg meðferð þarf m.a.:

  • þverfaglegt teymi á ábyrgð lækna og annars fagfólks
  • Siðareglur, sjúklingar sem koma til meðferðar eru viðkvæmir
  • Fjölbreytt val, ekkert eitt úrræði hentar öllum
  • Mismunandi nálgunarleiðir, heildstæðar
  • Göngudeildar og inniliggjandi meðferðarúrræði
  • Að sinna sjúklingum óháð trúarskoðun, litarhætti, kynhneigð eða félagslegri stöðu...og óháð áhuga á að stunda AA

*************************

Fagleg meðferð :

  • Byggist á greiningum
  • Greina fíknsjúkdóminn
  • Greina afleiðingar; líkamlegar/geðrænar
  • Greina samverkandi sjúkdóma, líkamlega og geðræna
  • Greina félagslega stöðu

********************************

Meðferð við fíknsjúkdómnum felst í mörgu, m.a. :

  • Meðferð við afleiðingum (t.d. fráhvörf, sýkingar, bris/lifrarbólga, geðræn einkenni)
  • Meðferð við fíknsjúkdómnum (til að vinna gegn falli, langtíma verkefni)
  • Meðferð við öðrum sjúkdómum samhliða, líkamlegum og geðrænum
  • Tekið á samverkandi þáttum í umhverfi
  • Meðferð fyrir aðstandendur (fjölskyldu, foreldra, börn, maka)

**********************************

Margar leiðir eru þekktar sem sannanlega bera árangur í meðferð fíknsjúkdómsins. SÁÁ hefur byggt á samþættingu og nýtingu þessara aðferða og þróað meðferðina  á sínum 32 ára ferli af reynslu og þekkingu. Dæmi:

  • Áhugahvetjandi viðtöl (MI), hugræn atferlismeðferð (CBT), styðja 12 spora sjálfshjálp (12st fascilitation), mútur/verðlaun (reinforcement, contingency), fallvörn (relapse prevention), einstaklingviðtöl, hópmeðferð, fræðsla, tenging við taugalífeðlisfræði og sjúkdómshugtakið, undirhópar (kvenna, unglinga, endurkomu), viðhaldsmeðferð við ópíumfíkn,...

************************

„Í meðferð gerist margt, t.d. læri ég að setja mér ramma, ég læri nýja hegðun, ný viðhorf líta dagsins ljós, ég sé að ábyrgðin er mín, líka á batanum.“ Konur í meðferð hjá SÁÁ. Staðreynd:

  • Eru aðeins 1/3 af sjúklingahópnum
  • Spurningar:
  • Eru þær aðeins 1/3 af þeim sem hafa sjúkdóminn?
  • Eða aðeins 1/3 af þeim sem leita meðferðar?
  • Eru konur í felum? Eða með minni vanda af fíknsjúkdómnum?
  • Tryggjum þó að þær getir leitað aðstoðar ef þær þurfa og vilja.

 

 

 

Til baka...
JxynKuXQtqFdHTLg
- 25.11.2011 20:35:26 Great article but it didn't have eeyvrhting?I didn't find the kitchen sink!
ytYrWHsxa
olOJWENkLizqBSmra
4Vc21W , [url=http://nosiitdlrhrg.com/]nosiitdlrhrg[/url], [link=http://ooobevnwknkk.com/]ooobevnwknkk[/link], http://pzqvprsocqsh.com/
alfRjToTIGJhCbG
ukfgHuxaznby
- 6.12.2011 18:27:05 i3wWGQ , [url=http://yrfbzwyfprnb.com/]yrfbzwyfprnb[/url], [link=http://xumshayovdoi.com/]xumshayovdoi[/link], http://reehuoanjyqy.com/
RDxMPzwpoifavqgGQM

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.