Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
18. febrúar 2010

Hvað er það sem skiptur okkur máli?

Valgeir Skagfjörð leikari

Valgeir Skagfjörð leikari skrifar

 

Niðurskurðarhnífur ríkisstjórnarinnar fer nú um allt samfélagið og nýjar tekjur ríkissjóðs verða skapaðar með auknum skattheimtum um leið og vöruverð heldur áfram að hækka og staða krónunnar veikist. Afleiðingar þessara aðgerða munu bitna á þeim sem síst skyldi. Einkum og sér í lagi þeim sem eiga um sárt að binda vegna veikinda, örorku eða annarra hindrana sem koma í veg fyrir að þeir geti tekið þátt í samfélaginu. 

 

Afleiðingar kreppunnar blasa hvarvetna við og sér engan veginn fyrir endann á þeirri óáran sem á eftir að skekja samfélag okkar á næstu misserum.

Glæpum fjölgar. Við fáum daglega fréttir af skipulögðu mansali. Heimilisofbeldi færist í aukana, neysla áfengis og fíkniefna eykst og harðari efni streyma inn á markaðaðinn og þeim fylgja ofbeldisglæpir sem við kærum okkar tæpast um að heyra af eða að lesa um í fjölmiðlum. Fjármál einstaklingana verða í ólestri og stjórnleysi grípur um sig. Það er upplausn alls staðar og það er alvarlegt þegar stjórnvöld skirrast við að horfast í augu við þann aukna vanda sem skyndilausnir þeirra skapa.

 

Hvaða vit er í því  að taka einn þátt heilbrigðiskefisins og skera niður við trog? Þann þátt sem hefur verið eina bjargræðið fyrir þann fjölda sem þjáist af alkóhólisma og á eftir að þjást af alkóhólisma í framtíðinni?

 

Á sama hátt og berklarnir voru afleiðing vosbúðarinnar í bröggunum og öðru því heilsuspillandi húsnæði sem fólk bjó við í annarri kreppu (ekki þar fyrir að alkóhólismi hafi ekki verið undirliggjandi mein líka en það tókst þó með samstilltu átaki að útrýma breklunum nær alveg) þá er alkóhólismi afleiðing af því heilsuspillandi umhverfi sem kreppan eftir hrunið í dag er að skapa.

 

Í dag eru kjöraðstæður fyrir alkóhólisma til að grassera sem aldrei fyrr og þá þarf að taka saman höndum – „slá skjaldborg“ um þá von sem starf SÁÁ hefur vakið meðal þjóðarinnar. Við skulum ekki bara hugsa um alkóhólistana sjálfa heldur einnig þann fjölda fjölskyldna sem þjást og verða fyrir sjúkdómnum óbeint.

 

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin gaf út þá yfirlýsingu fyrir nokkrum árum að alvarlegasti sjúkdómur sem ætti eftir að herja á mannkynið væri alkóhólismi. Litla Ísland er nú einu sinni hluti af heiminum en með öflugu starfi SÁÁ og hinni miklu vakningu innan AA-samtakanna á Íslandi og annarra 12 spora samtaka þá hefur orðið gjörbylting á hugarfari og viðhorfi fólks til alkóhólisma.

 

Hér er tækifæri fyrir Ísland til að ganga á undan með góðu fordæmi og hjálpa öðrum þjóðum að kljást við alkóhólisma – því fyrir tilstuðlan SÁÁ hefur orðið til gríðarlega yfirgripsmikil þekking á sjúkdómnum og fjölmargir einstaklingar, fagfólk sem leikmenn hafa náð miklum árangri í að hjálpa fólki til að losna frá áfengisbölinu.

 

Það er ekki lítils virði og þess vegna skora ég á stjórnvöld að falla frá þeim niðurskurði sem fyrirhugaður er hjá sjúkrastofnun SÁÁ. 

 

Við verðum að eiga VON. Vonin er stærsta gjöf lífsins til manneskjunnar. Takið  ekki vonina frá okkur. Oft var þörf en nú er nauðsyn fyrir starf SÁÁ.

 

 

meira
Til baka...

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
12 reynsluspor og erfðavenjur
Þessi bók fjallar um reynslusporin tólf og erfðavenjurnar tólf , sem einkenna AA.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.