Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
8. mars 2010

Styrktarsjóður SÁÁ

 

Á fundi sínum 17.12.08 samþykkti framkvæmdastjórn SÁÁ að stofna styrktarsjóð til þess að koma í veg fyrir að fátækir áfengis- og vímuefnasjúklingar ættu erfiðara með að sækja sér meðferð en hinir sem betur mega sín. Meginmarkmið sjóðsins er að veita sjúklingum styrki til að greiða sinn hluta í meðferðarkostnaði á göngudeild og eftirmeðferðarheimilum SÁÁ.

 

Framkvæmdastjórn SÁÁ leitar eftir framlögum í þennan styrktarsjóð hjá fyrirtækjum, stéttarfélögum, sveitarfélögum og einstaklingum. Styrktarsjóðurinn er hugsaður sem gegnumstreymissjóður á þann hátt að mest af því sem gefið er í sjóðinn verður veitt beint til sjúklinga í formi styrkja. Þó verður á hverjum tíma tekið 10% af allri innkomunni og því komið fyrir í varanlegan sjóð sem ekki má skerða þó að vaxtatekjur hans verði notaðar til almennra styrkja úr styrktarsjóðnum.

 

Ákveðið er að sjúklingar geti sótt styrk í sjóðinn til þess að greiða hlut sinn í endurhæfingarmeðferð á Staðarfelli og Vík einnig hlut sinn í dagdeildarmeðferð á göngudeildum SÁÁ. Einnig getur fólk sótt um styrk til að greiða hlut sinn í fjölskyldumeðferð. Gert er ráð fyrir að það fólk sem á rétt á stuðningi sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð fái ekki styrki úr þessum sjóðum heldur hinir sem ekki hafa þar rétt og sannanlega hafa ekki fjármuni til að greiða sitt gjald að svo stöddu. Hverja umsókn verður að undirrita af hálfu áfengis- og vímuefnaráðgjafa hjá SÁÁ.

 

Sjá vef

 

 

 

meira
Til baka...

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
11

12
18

19
25

26
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Aldrei aftur meðvirkni
Bók um hvernig tilfinningasambönd og tengsl taka á sig skrumskælda mynd í skugga fíknar.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.