SÁÁ

Sjálfstætt fólk

                                                                     Hekla Jósepsdóttir
Sjálfstætt fólk er nýr félagsskapur innan SÁÁ sem hefur það að markmiði að skemmta sér og lifa lífinu edrú. Í sumar var haldin útivistarhátíð að Hlöðum í Hvalfirði. Mæting var vonum framar en mörg flottustu bönd landsins spiluðu og það var dansað og hugleitt og farið í sjósund og látið spá fyrir sér og alskonar flipp. Í vetur mun Sjálfstætt fólk standa fyrir nýársfögnuði og tröllaballi.

 

Nýársfagnaður og tröllaball

„Okkur langar að fagna nýju ári með stæl. Fyrst með galakvöldi á nýársdag og svo með fjölskylduballi á þrettándanum,“ segir Hekla Jósepsdóttir, ein af þeim sem fyrir þessum nýja félagsskap, Sjálfstæðu fólki, en þrettándaballið verður tröllaball: „Það verður með stóru sniði og allar veitingar verða fyrir tröll líka en hugmyndin er að við borðum öll saman fjölskyldan og skemmtum okkur.“

 

Ítalskt brúðkaup

Verður tröllaballið þá eins og ítalskt brúðkaup?

„Já, eða þannig. Fjölskyldan mun skemmta sér saman í gleði og kærleika en á útivistarhátíðinni okkar um Verslunarmannahelgina myndaðist svo rosalega góð stemmning að við höfum ákveðið að halda aftur útihátíð á næsta ári,“ segir Hekla en hópurinn sem stóð að útivistarhátíðinni  vill endilega vinna saman að fleiri viðburðum og skemmta sér saman edrú.

 

Lengi var haldinn nýársfagnaður SÁÁ og var vel sóttur. Það er því vel, að mati Heklu, að Sjálfstætt fólk endurveki þá hefð en nánar verður auglýst síðar hvar og hvenær sá fögnuður verður.

Búast má við miklu því mörg af heitustu böndum landsins spiluðu að Hlöðum í Hvalfirði um helgina ásamt gamalreyndum og dáðum tónlistarmönnum á borð við KK og Valgeir Skagfjörð.

 

 

Sjálfstætt fólk er nýr félagsskapur innan SÁÁ sem hefur það að markmiði að skemmta sér og lifa lífinu edrú.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heilbrigt líf er töff

„Þrettándinn hittir á föstudagskvöld í ár og nýársdagur er á sunnudagskvöldi,“ útskýrir Hekla sem telur það bara betra því það er sjaldgæft að fjölskyldan geti farið saman á ball en skemmtiatriði og annað verður sérhannað fyrir fjölskylduna. Á Hlaðir kom ekki bara Leikhús Lottu til að skemmta börnunum heldur líka Björgvin Franz og Margrét Blöndal fór með krakkana í göngutúra í náttúrunni og margt fleira.

 

„Heilbrigt líf er töff,“ segir Hekla að lokum og biður áhugasama að taka dagana frá og fylgjast nánar með á heimasíðu samtakanna www.saa.is

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.