SÁÁ

Þurrir miðvikudagar

                                                  Amy Winehouse

í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti, kl. 20:30

Síðasta vetur héldum við svokallaða Þurra miðvikudaga í Von, eða Samtöl um alkóhólisma og hitt og þetta. Þessir fundir voru ótrúlega vel sóttir. Miðvikudaginn 7. september hófst dagskráin aftur. Samtölin á miðvikudagskvöldunum eru öllum opin, allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta. Og það kostar ekkert.

 

Þessi samtöl á miðvikudagskvöldum gerðu mikla lukku í fyrra. Þá var efnt til samtala um alkóhólisma og bókmenntir, offitu, Guð, uppeldi og margt fleira.

 

Fyrirkomulagið verður það sama í vetur. Fyrst munu tveir til þrír framsögumenn halda stutt erindi en síðan gefst gestum kostur á að blanda sér í samtalið. Reynslan í fyrra var sú að úr varð líflegt spjall um áhugaverð efni í góðum félagsskap. Markmið þessara samtala er ekki að komast að einni tiltekinni niðurstöðu heldur frekar að eiga raunveruleg mannleg samskipti utan Netheima; samskipti byggð á virkni og virðingu.

 

 

 Miðvikudagar í febrúar 2012

8. febrúar

Getur heimspeki gert þig heilbrigðan?

Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor ræðir um AA-stefnuna og skyldleika hennar við heimspekilegar hugmyndir. Samtalið hefst sem fyrr kl. 20:30 og verður slitið á slaginu 22:00. Allir eru hjartanlega velkomnir.

22. febrúar

Höfðu þeir sem ekki vildu afema bjórbannið rétt fyrir sér?

Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, fer yfir rök með og á móti afnámi bjórbanns og metur hvað hæft var í rökum fylgjenda eða andstæðinga bjórbannsins.

15. febrúar

Stjórnmál og áfengis- og vímuefnavandi

 Gunnar Smári Egilsson, fomaður SÁÁ, rekur hvernig baráttan við áfengis- og vímuefnavandann hefur blandast inn i stjórnmál gegnum tíðina. Samtalið  hefst 20:30 og lýkur kl. 22:00. Allir eru velkomnir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Miðvikudagar í nóvember 2011

2. nóvember

Samtal um alkóhólisma og andleg málefni.

Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur og Tolli Morthens listmálari vekja upp spurningar og hugmyndir um alkóhólisma og andleg mál á miðvikudagskvöldið 2. nóvember klukkan 20:30 í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti.

 

 

23. nóvember

Samtal um alkóhólisma í jólabókunum

Höfundar lesa kafla úr jólabókunum sem tengast ofdrykkju, alkóhólisma og fíkn og spjalla við gesti um birtingarmyndir áfengis- og vímuefnasýki í bókmenntum, listum og sögum. Guðmundur Andri Thorsson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur, Jakob Frímann Magnússon og Þórarinn Leifsson lesa.

 

 

16. nóvember

Samtal um alkóhólisma og ADHD hjá börnum

Ýr Sigurðardóttir, barnalæknir, og Lárus Blöndal, sálfræðingur, hefja samtalið og drepa á ýmsu sem snertir ADHD í börnum og áfengis- og vímuefnasýki.

Samtalið hefst klukkan 20:30 og lýkur klukkan 22:00. Allir eru hjartanlega velkomnir og það kostar ekkert inn. 

30. nóvember

Samtal um kostnað samfélagsins vegna áfengis og vímuefna

Ari Matthíasson kynnir sláandi niðurstöður meistaraprófsritgerðar sinnar um kostnað samfélagsins vegna áfengis- og vímuefnanotkunar, sem kynntar voru í síðasta SÁÁ-blaði.

 

 

  

 

  Miðvikudagar í október 2011

19. október

Samtal um alkóhólisma, föll og fordóma.

Þráinn Bertelsson heldur uppi samtali um alkóhólisma, föll og fordóma í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7, á miðvikudagskvöldið 19. október klukkan 20.30.

Þráinn mun lesa upp úr nýrri bók sinni, Fallið, og spjallar við gesti um glímu sína við alkóhólisma og fordóma sjálfs sín og samferðarmanna sinna.

 

 

 

26. október

Kvöldstund með Guðrúnu Ebbu

 Guðrún Ebba Ólafsdóttir les kafla úr bók sinni og Elínar Hirst, Ekki líta undan, og ræðir um efni hennar í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7, miðvikudaginn 26. október klukkan 20.30.

Á eftir inngangi Guðrúnar Ebbu gefst gestum tækifæri til að leggja til samtalsins eða spyrja Guðrúnu Ebbu. Allir eru hjartanlega velkomnir og það kostar ekkert

 

 

 

 

  Miðvikudagar í september 2011

7. september

Samtal um alkóhólisma og rokk & ról — 27 ára klúbburinn.

Þar munu Óttar Guðmundsson geðlæknir og dr. Gunni ræða um líf og örlög Brian Jones, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Kurt Cobain og Amy Winehouse; hvaða áhrif hafði áfengis- og vímuefnaneysla á líf þeirra og list — og dauða.

 


14. september

Samtal um alkóhólisma og lyfjalausa meðferð.

 

Pétur Tyrfingsson sálfræðingur ræðir um hugræna

atferlismeðferð við þunglyndi, Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur mun fjalla um leið sína til bata án lyfja og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, mun fjalla um áfengismeðferð og lyf.

  


21. september

Samtal um alkóhólisma, glæp og refsingu.

 

Erlendur Baldursson afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri hjá Vernd og Tolli listmálari, koma og ræða um refsingar og meðferð, glæpavæðingu sjúkdómsins, rétt fanga á heilbrigðisþjónustu, dómlengd o.fl.

 

 

28. september

Samtal um alkóhólisma og ýmsar hliðar öldrunar

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir og Sigurður Gunnsteinsson, dagskrárstjóri hefja samtalið og fjalla um ýmsar hliðar öldrunar, áfengisneyslu og ranga notkun lyfja. Gestum gefst síðan færi á að spyrja þá félaga eða leggja sín sjónarmið eða reynslu í umræðuna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...