SÁÁ

Umræðan á saa.is

Umræðan á saa.is


Vilja alkóhólmæla leikmenn

10. mars 2004 09:44

Enska knattspyrnusambandið hefur eðlilega miklar áhyggjur af drykkjuvenjum leikmanna í ensku úrvalsdeildinni en hvert hneyklismálið á fætur öðru hefur komið upp þar sem knattspyrnumenn á Englandi hafa komið við sögu og nú síðast hjá leikmönnum Leicester í æfingaferðalagi liðsins á Spáni. Forkólfar enska knattspyrnusambandsins hafa viðrað þær hugmyndir að framkvæma með reglulegu millibili alkóhólmælingar á leikmönnum og segir Gordon Taylor, framkvæmdastjóri sambands atvinnuknattspyrnumanna, að honum lítist ágætlega á það. "Misnotkun á áfengi er ekki bara vandamál innan knattspyrnunnar heldur er þetta stórt samfélagslegt vandamál í landinu. Við framkvæmum mörg lyfjapróf og ég veit til þess að félög eru farin að nota sérstaka mæla til að athuga með alkóhólið," segir Taylor við breska blaðið Mirror.

Þessi frétt var í Mogganum í dag. Varla er um það að ræða að leikmenn séu að spila fullir eða rallhálfir. Sjálfur þekki ég það frá Englandi að það þykir til marks um karlmennsku að drekka mikið magn af bjór (á einni kvöldstund) og halda svo lengi í sér. Þessir drykkjusiðir er hálfgerð "pissing contest" enda kallar Tjallinn það "piss-up" að fara á fyllirí.
Fyrra nýtt  Fyrra  Upp  Niður  Næsta  Næsta nýtt 
ÞræðirSvara Nýr þráður
Titill Höfundur Skráð
Vilja alkóhólmæla leikmenn (Nýtt) Arnþór Jónsson 10.3.2004

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.