SÁÁ

Umræðan á saa.is

Umræðan á saa.is


Furðulegt að reyna að skjóta allt í kaf.

12. maí 2004 23:32

Það hefur komið mér mjög mikið á óvart að fylgjast hér með umræðunni um þessar 3 fréttir sem birtust á RÚV um miðjan apríl mánuð.
Hefur mér fundist sem skrif þeirra sem hjá SÁÁ vinna verið mjög óþroskuð og eins og þau séu ekki til neins annarrs en að drulla Grím Atlason og Pál Biering út.
Það er svo skrýtið að þegar einhver í þessu þjóðfélagi kemur með uppástungu um nýja aðferðir eða gamlar í baráttunni við vímuefnavandan þá bregðast alltaf sömu mennirnir hjá SÁÁ illa við þar sem þetta er samræmist ekki þeirra skoðunum.
Það er eins og það sem SÁÁ býður upp á sé eina leiðin í heiminum til að vinna á vandanum.
Nei hún er það svo sannarlega ekki það er t.d til ein margra ára gömul leið sem kemur fram í AA bókinni og heitir Tólf reynsluspor AA samtakanna.
Þetta er talið vera eina leiðin í öllum heiminum sem virki á okkur alkahólistana og er búið að reyna margt annað.
Ég er ein af þeim lánsömu sem hef fengið að kynnast þessari leið, ég var búin að reyna fullt af öðrum leiðum og var þetta sú eina sem hefur virkað.
Við erum með sjúkdóm sem er þríþættur það er líkamlegt ofnæmi, huglæg þráhyggja og andlegt mein.
Til að stoppa líkamlega ofnæmið förum við í afvötnun og til að losna við andlega meinið og huglægu þráhyggjuna þurfum við að vinna sporin því þau gera okkur kleyft að gera upp fortíðina og sjá okkar hlut í málunum, taka ábyrgð á gerðum okkar og gera yfirbót því áfengi er aðeins einkenni sjúkdómsins en ekki vandamálið.
Ef áfengi væri vandamálið þá nægði okkur það eitt að hætta að drekka og engin þyrfti að hafa áhygjur af því að falla.
Hér áður fyrr hélt ég að það nægði að tala um vandamálin mín á AA fundi en eina sem það gerði var smá léttir meðan á fundi stóð, í dag geri ég mér grein fyrir að síðasti staðurinn til að tala um mín vandamál er AA fundur því hvernig í ósköpunum hjálpar það nýliðanum sem er kannski að koma á sinn fyrsta fund að heyra öll mín vandamál.
Nýliðinn er það mikilvægasta á AA fundum og það er hann sem við þurfum að hjálpa og sýna hver leiðin er til betra lífs án áfengis.
Það sem komið hefur mér mest á óvart er að sumir ráðgjafar hjá SÁÁ virðast algjörlega á móti sporunum og þeir vara fólk við að fara í sporin!
Gera þessir einstaklingar sér grein fyrir skaðanum sem þeir geta valdið!
Er ekki komin tími til að þið opnið huga ykkar aðeins og skoðið hvað aðrir hafa upp á bjóða.
Kveðja Benedikta
Fyrra nýtt  Fyrra  Upp  Niður  Næsta  Næsta nýtt 
ÞræðirSvara Nýr þráður
Titill Höfundur Skráð
Furðulegt að reyna að skjóta allt í kaf. (Nýtt) Benedikta Ketilsdóttir 12.5.2004
      í lífsins ólgusjó (Nýtt)
Arnþór Jónsson 14.5.2004
      Furðulegt að skjóta (Nýtt)
Hörður J. Oddfríðarson 18.5.2004
         Misskilningur á ferð! (Nýtt)
Benedikta Ketilsdóttir 19.5.2004

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.