Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Fræðsluefni

 

 

Viðhorf heilbrigðisstétta

 

Framan af öldinni höfðu heilbrigðisstarfsmenn lítil afskipti af áfengis- og vímuefnasýki. Á seinni helmingi aldarinnar hefur áhugi þeirra vaxið töluvertog kemur þar tvennt til. Í fyrsta lagi hafa læknar þurft að sinna fylgikvillum þessa sjúkdóms í vaxandi mæli, einkum sýkingum og eitrunum. Munar hér mest um vaxandi fjölda sprautufíkla sem jafnan eru líkamlega veikari en aðrir fíklar og gjarnan fórnarlömb alnæmis og lifrarbólgu C.


Í öðru lagi hefur aukin þekking á sviði taugalífeðlis-fræðinnar beint athygli lækna að þessum sjúkdómi og vakið áhuga þeirra sem fer vaxandi. Þó gengur læknum ennþá illa að greina vandann á almennum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Nærri öll vinna þeirra beinist að fylgikvillum og fráhvörfum. Þeir beita ekki fyrir sig læknis-fræðinni að neinu marki til að leysa þennan króníska sjúkdóm á heildstæðan hátt og taka alltof lítinn þátt í að lækna og endurhæfa sjúklinga með varanlegt bindindi að markmiði. Viðhorf heilbrigðisstétta til áfengis- og vímu-efnasjúklinga hafa þó breyst mikið með vaxandi þekkingu.

 

Orsök og afleiðing


Nýjar hugmyndir og aðferðir við áfengismeðferð komu fram í Bandaríkjunum um 1950 og náðu mikilli útbreiðslu eftir 1970. Boðberar þessara nýju viðhorfa voru einkum heilsugæslufólk sem hafði sjálft átt við vandann að stríða. Þessar aðferðir byggðust að hluta til á hugmyndum sem settar höfðu verið fram í AA-bókinni 1939.


Þessi nýja meðferðarstefna er gjarnan kennd við Minnesotafylki í Bandaríkjunum þar sem fyrstu stofnanirnar voru sem fylgdu henni (The Minnesota Treatment Model). Þessi meðferðarskóli hefur allar götur verið í þróun og sókn í Bandaríkjunum og var ráðandi á meðferðarstofnunum fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga fram til 1990. Samkvæmt þessari stefnu er áfengissýki talin sérstakur sjúkdómur sem þarf sérhæfðrar meðferðar við. Það sem áður var talið einkenni um geðveiki eða geðveilu hjá alkóhólistum er nú oftar talið afleiðing drykkjunnar fremur en orsök. 

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
12 reynsluspor og erfðavenjur
Þessi bók fjallar um reynslusporin tólf og erfðavenjurnar tólf , sem einkenna AA.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.