SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

DSM IV - spilafíkn

 

Spilafíkn

Til þess að fá endanlega úr því skorið hvort þú ert spilafíkill þarft þú að fara í greiningarviðtal hjá fagmanni með nægilega góða reynslu. Venjan er að styðjast við handbók Ameríska geðlæknafélagsins þegar sjúkdómurinn spilafíkn er greindur. Stór hópur sérfróðra fagmanna kom að gerð þeirra viðmiðunareinkenna sem er að finna í fjórðu útgáfunni (Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders, Fourth Edition: DSM VI) frá 1994.

 

DSM - IV Spilafíkn - Þessar viðmiðanir eru fyrir spilafíkn :

  1. Upptekinn af fjárhættuspili (þ.e.a.s. upptekinn af síðasta spili, af því að undirbúa eða leggja á ráðin með næsta spil eða finna leiðir til að útvega peninga til að geta spilað með).
  2. Þarf að leggja undir meira fé en áður til að öðlast þá spennu sem sóst er eftir.
  3. Endurteknar tilraunir til að stjórna, draga úr eða hætta fjárhættuspili hafa mistekist.
  4. Eirðarleysi eða pirringur þegar reynt er að draga úr eða hætta fjárhættuspili.
  5. Fjárhættuspil notað sem aðferð til að flýja vandamál eða bæta úr vanlíðan (t.d. hjálparleysi, sektarkennd, kvíða eða þunglyndi).
  6. Eftir að hafa tapað fer einstaklingurinn oft aftur til þess að vinna upp tapið ("eltir tapið").
  7. Lýgur að fjölskyldumeðlimum, meðferðaraðilum eða öðrum til að leyna því hve djúpt hann er sokkinn.
  8. Hefur gripið til ólöglegs athæfis til að fjármagna fjárhættuspil, t.d. skjalafals, fjársvika, þjófnaðar eða fjárdráttar.
  9. Hefur stofnað í hættu eða glatað dýrmætum tengslum við fólk, atvinnu, skólagöngu eða tækifærum á frama vegna fjárhættuspilsins.
  10. Treystir á fjárhagsaðstoð annarra til að bæta slæman fjárhag vegna fjárhættuspila. 

 

Greining og inngrip

Afeitrun

DSM IV

DSM IV - spilafíkn

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.