Áfengis- og vímuefnafíkn er alvarlegur heilasjúkdómur
Áfengis- og vímuefnaneysla hefur verið vaxandi þjóðfélagsvandi alla síðustu öld. Á Vesturlöndum hefur ástandið einkum versnað eftir að ólöglegur vímuefnafaraldur geisaði meðal ungs fólks á sjöunda áratugi síðustu aldar. Þrátt fyrir góðan vilja og miklar mótaðgerðir hefur ekki tekist að draga úr þessum vanda. Þegar á heildina er litið hefur áfengis- og vímuefnavandinn aukist stöðugt. Þessi vandi er ekki aðeins gríðarlegur að vöxtum heldur einnig flókinn og margbreytilegur. Hann birtist okkur í fjölmörgum myndum eins og slysum, sjúkdómum, afbrotum, fjölskylduvandamálum og persónulegri óhamingju.
Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar sem greindur er samkvæmt viðurkenndum alþjóðlegum aðferðum (DSM-IV og ICD- 10) og fengist er við á sjúkrastofnunum SÁÁ er einungis hluti að hinum mikla vanda sem hlýst af áfengis- og vímuefnaneyslu. Hann er þó stór og alvarlegur hluti vandans.
Til baka