SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Sjónvarp - kannabis

 

 

Dagleg neysla stefnir geðheilsu i voða

Neysla kannabisefna óx hröðum skrefum í vestrænum þjóðfélögum á seinni hluta tuttugustu aldar þrátt fyrir að framleiðsla dreifing og sala efnanna væri ólögleg. Neyslan er nú orðin það almenn að á síðasta áratug hefur umræða um að lögleyfa þessi efni orðið sjálfsögð og sumstaðar hefur það verið gert. Hér á Íslandi hefur aðalvandinn sem fylgir þessari neyslu verið sá, að stór hluti þeirra unglinga og ungmenna sem nota efnin á annað borð gera það daglega og verða félagslega óvirkir og stefna geðheilsu sinni í voða. Þau flosna þá upp úr skólum eða vinnu og eru í mikilli hættu að leiðast út í aðra og harðari vímuefnaneyslu.

 

Til baka

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.