SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Sjónvarp-kvennameðferð

 

 

Konur sæta fordómum

Í ársbyrjun 1995 hófst síðan sérstök meðferð fyrir konur eftir mikla undirbúningsvinnu á árinu 1994. Þessi meðferð var sérstaklega búin til og skipulögð frá upphafi til enda með þarfir vímuefnasjúkra kvenna í huga. Meðferðin byrjar strax á Vogi og þar eru konurnar saman í hópi og fá sérstaka fræðslu.

 

Í kvennahópnum er reynt að skapa vinsamlegt umhverfi og aðstæður sem auðvelda konunum að taka sín fyrstu skref í meðferðinni. Ekki er vanþörf á þessu því að konur í áfengismeðferð sæta miklum fordómum og fá að jafnaði mun minni stuðning að heiman en karlarnir. Frá upphafi er reynt að efla samstöðu kvennanna og búa til samhentan hóp sem þjappar sér saman í meðferðinni og eftir hana. Þetta er nauðsynlegt því flestar vímuefnasjúkar konur er orðnar mjög félagslega einangraðar og eru í milli hættu á að einangrast jafnvel enn meira eftir meðferðina, sjá ársskýrslu.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.