SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Sjónvarp - örvandivímuefni

 

 

Sækja með vaxandi þunga í rítalín

Örvandi vímuefnaneysla (E-pilla, kókaín og amfetamín og þar með talið rítalin) er alvarlegasta vímuefnafíknin á  Íslandi. Hún herjar mest á fólk milli 20 og 30 ára. Meira en helmingur fíklanna fer að sprauta efnunum í æð með öllum þeim kvillum sem því fylgir. Þessi fíkn vex stöðugt, bæði kókaín og amfetamínfíkn. Á fyrsta kreppuári 2009 verður nokkur breyting á neyslunni því fíklarnir virðast nota kókaín og e-pillu miklu sjaldnar en fíklarnir bæta sér það upp með því að sækja með vaxandi þunga í rítalín. Þegar á heildina er litið heldur örvandi vímuefnaneysla sínum hlut þó að nýgreindum örvandi vímuefnafíklum fækki eitthvað 2009. Sprautufíklum sem sprauta sig reglulega með örvandi efnum í æð heldur enn áfram að fjölga á sjúkrahúsinu Vogi. Meira og meira af örvandi ávanalyfjum (ritalín og amfetamín ) virðist komast  inn á ólöglega vímuefnamarkaðinn og gengur þar kaupum og sölum.

 

Til baka

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.