SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Sjónvarp - unglingar

 

 

Vímuefnafíkn hjá unglingum er þrálát og alvarleg

Ólögleg vímuefnaneysla meðal unglinga var að gríðarlegt vandamál á Íslandi á árunum 1996-2005 og þó að dregið hafi úr vandanum er hann óásættanlegur og ennþá allt of stór. Mikill fjöldi daglegra neytenda vímuefna á aldrinum 14- 18  ára hefur komið í meðferð á Vog.

 

Margir eru vantrúaðir á að vímuefnavandi unglinganna geti verið eins alvarlegur og hjá þeim fullorðnu - telja að flestir unglingar vaxi upp úr þessu eða á ferðinni séu önnur vandamál óskyld vímuefnaneyslunni. Fagfólkið sem vinnur með þessa unglinga er þó smám saman að gera sér grein fyrir að líklega er vímuefnavandinn jafnalvarlegur og þrálátur hjá unglingunum og hjá þeim eldri.

 

Vímuefnavandinn eignast fljótt sitt eigið líf hjá þeim ungu og verður erfiður viðfangs, hverjir sem orsakaþættirnir eru í fyrstu. Nýlegar rannsóknir benda til hins sama, að vímuefnafíkn hjá unglingum sé þrálát og alvarleg. Allt of fáir gera sér þetta ljóst. Tölulegar upplýsingar um það hversu margir hafa leitað sé meðferðar á Vog fyrir 20 ára aldurinn og hversu stór hlutur þeirra hefur látist ótímabært og langt um aldur fram segir sína sögu, sjá ársskýrslu.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.