SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Viðtal við Þórarin Tyrfingsson 1.hluti

 

 

Áfengis- og vímuefnafíkn

Þekking á áfengissýki- og vímuefnafíkn hefur vaxið hröðum skrefum undanfarin 25 ár. Munar hér mestu um undraverðar framfarir í þekkingu okkar á uppbyggingu og starfsemi heilans og áhrifum vímuefna á hann. Í kjölfarið hefur áhugi heilbrigðisstarfsmanna á vímuefnafíkn aukist sem aftur hefur leitt til mikilla framfara í meðferð við vímuefnafíkn. SÁÁ hefur notfært sér þetta og miklar breytingar til batnaðar hafa orðið í áfengis- og vímuefnameðferðinni sem samtökin bjóða upp á undanförnum árum. 2. hluti framh.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.