Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Ertu í vanda?

 

SOS - Spurningar og svör

 

Ef þú heldur að þú eða einhver sem þér þykir vænt um hafi áfengisvanda talaðu þá við ráðgjafana okkar hjá SÁÁ. Þeir munu taka þér vel og svara spurningum þínum. Þú getur pantað þér viðtal eða haft samband í gegnum síma 530-7600

 

Þú ert ekki bara að stofna þínu lífi og heilsu í voða ef þú drekkur of mikið áfengi. Drykkjan þín kemur niður á ástvinum þínum, vinnufélögum og vinum. Ef þú hefur ekki stjórn á drykkju þinni veldur það vinum þínum og ættingjum miklum áhyggjum og ef þú átt börn eru þau undir miklu álagi. Þú veist svo væntanlega hversu illa þú ert að fara með heilann þinn og geðheilsu. Skoða myndbönd.

 

Góðu fréttirnar eru þær að flestir sem viðurkenna að þeir eiga við áfengisvandmál að stríða og leita sér aðstoðar hjá SÁÁ ná góðum árangri. Meðferðin sem þú þarft getur verið mjög mismunandi og fer eftir því hversu alvarlegur þinn vandi er, allt

frá einu viðtali í viðamikla meðferð.

 

Innlagnarbeiðni

Viltu leggja inn beiðni á Vog? Hringdu þá í síma 530-7600

 

Sjálfspróf

Til eru sjálfspróf sem geta upplýst þig frekar og gefið þér vísbendingar, líttu á þau. Ef niðurstöðurnar benda til þess að þú eigir við áfengisvanda að stríða þarft þú að grípa til aðgerða. Þú getur reynt að draga úr drykkju þinni en ef það tekst ekki strax skalt þú tala við ráðgjafa hjá SÁÁ. Þú gætir verið alkóhólisti og þá þarft þú að hætta alveg að drekka og það er ekki auðvelt. Sími á Göngudeild SÁÁ er 530-7600, þú getur  pantað þér viðtal á morgun ef það er virkur dagur.

 

Algengar spurningar:

  1. Hvað get ég gert til að komast að því hvort ég er alkóhólisti eða ekki?
  2. Hvað á ég að gera og hvert á ég að snúa mér ef ég tel mig þurfa á meðferð að halda?
  3. Hvað er hófleg áfengisneysla?
  4. Hvað get ég gert til að komast að því hvort ég er spilafíkill eða ekki?
  5. Hvaða líkur eru á því að mér batni ef ég fer í meðferð?
  6. Á að kaupa vín handa unglingum?
  7. Áfengisneysla hjá maka mínum er komin úr böndunum. Hann neitar að ræða um neyslu sína sem vandamál. Hvað get ég gert til að hjálpa honum og hvernig get ég komið honum til að fara í meðferð?
  8. Byggist áfengis- og vímuefnameðferð SÁÁ á heilaþvotti og trúarofstæki?
  9. Hvað er læknadóp?
  10. Er notkun kannabisefna skaðleg ef þeirra er neytt í hófi?
  11. Hversu útbreidd er eiturlyfjaneysla á Íslandi?

 

 

 

 

SOGS-spurningalistinn telur 17 spurningar og gefur skýra mynd af því hvort spilavandamál er á ferðinni...
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata Reynsluspor Al-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 4-6
4 – 6. spor. Vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.