SÁÁ

Hófleg drykkja?

 

Hófleg drykkja er skilgreind á eftirfarandi hátt:

Karlar (20-65 ára):

Tveir drykkir eða minna á dag að jafnaði.
Aldrei meira en fimm drykkir í hvert sinn.
Samanlagt fjórtán drykkir á viku eða minna.

 

Konur (og karlar eldri en 65 ára):

Einn drykkur eða minna á dag að jafnaði.
Aldrei meira en fjórir drykkir í senn.
Samanlagt minna en sjö drykkir á viku.

 

Hvað er einn drykkur af áfengi?

Vínföng innihalda mismunandi mikið magn af áfengi og því er nauðsynlegt að finna mælikvarða sem almenningur á auðvelt með að skilja. Sú venja hefur skapast að tala um drykki af áfengi sem þá eru skilgreindir á eftirfarandi hátt:

 

Einn drykkur eða vínskammtur inniheldur um 12 g af hreinu áfengi. Slíkur skammtur svarar til u.þ.b. eins barskammts (sjúss) sem eru 30 ml af brenndu víni, um 150 ml af léttu víni eða um 400 ml af bjór.

 

Ofangreind mörk hófdrykkju geta verið of há fyrir aldrað fólk eða þá sem eru með vissa sjúkdóma. Ef þú ert í vafa um hver mörk þín eru skaltu ráðfæra þig við lækni þinn.

  Fólk yngra en 18 ára á ekki að nota áfengi!!

.   Er áfengisneyslan í lagi?

  Spurningalistar      

 

Ef þú drekkur stundum fjóra daga samfellt og skelfur eftir drykkjuna? Hefur farið í bindindi eða hugsað um að hætta? Ástvinir þínir eða foreldrar haft áhyggjur? Þá er vandinn alvarlegur og ef allt þetta er fyrir hendi ert þú alkóhólisti og þarf á meðferð að halda.

 

Til eru spurningalistar sem geta upplýst þig frekar og gefið þér vísbendingar. Þú getur síðan pantað þér viðtal á Göngudeild SÁÁ á morgun ef það er virkur dagur. Síminn þar er 530-7600.

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...