
Læknar ráðleggja öllum verðandi mæðrum að neyta helst engra lyfja eða vímuefna þar sem þau geta verið skaðleg fyrir fóstrið. Í einni dýrarannsókn kom í ljós að kannabisneysla olli fósturmissi.
Komið hefur í ljós að börn mæðra sem neyttu kannabis á meðgöngu voru léttari við fæðingu og höfðu minna höfuð en börn mæðra sem neyttu ekki kannabisefna. Þá hafa einnig komið fram upplýsingar um að kannabisneysla mæðra á meðgöngu geti valdið truflunum á taugakerfi barnanna og vísbendingar eru um að þessi börn geti átt við einbeitingarerfiðleika að etja til framtíðar.
Hvað með börn sem eru á brjósti og móðirin neytir kannabisefna?
Þegar móðir, sem neytir kannabisefna, gefur barni sín brjóst berst hluti af þeim efnum sem hún hefur fengið í sig við neysluna yfir í barnið. Eitt þessara efna er THC sem er virkasta vímuefni kannabisplöntunnar. Það er rétt að gæta að þessu því THC er mun samþjappaðra í brjóstamjólk móðurinnar heldur en í blóði hennar. Ein rannsókn hefur sýnt fram á að börn sem fá brjóstamjólk mæðra sem eru í kannabisneyslu eiga í erfiðleikum með hreyfiþroska.
Til baka