SÁÁ

Leiðir neysla kannabisefna til neyslu annarra vímuefna

 

Langtíma rannsóknir á grunn- og framhaldsskólanemendum hafa leitt í ljós að mjög lítill hluti ungs fólks neytir annarra vímuefna án þess að hafa prófað kannabisefni áður. Í Bandaríkjunum hefur verið reiknað út að áhættan á  því að einhver prófi kókaín sé 104 falt meiri fyrir þá sem hafa neytt kannabisefna en hinna sem aldrei hafa neitt þeirra. Samt sem áður eru engar rannsóknir sem benda skýrlega til þess að neysla á kannabisefnum leiði  til neyslu annarra vímuefna enda þarf að skoða líffræðilega, sálfræðilega og félagsleg þætti til að skýra tengsl milli neyslu ólíkra gerða fíkniefna.


Neysla kannabisefna er engu að síður talinn stór áhættuþáttur varðandi það að fara út í neyslu sterkari efna. Þetta mat byggir m.a. á rannsóknum á áhrifum langvarandi kannabisneyslu á miðtaugakerfið. Þannig hafa slíkar rannsóknir bent til þess að langvarandi kannabisneysla valdi breytingum í heilanum sem síðan leiðir til þess að neytendur verða í meiri hættu gagnvart því að verða háðir öðrum vímuefnum, eins og áfengi og kókaíni, en þeir sem ekki neyta kannabisefna.

 

Til baka 


 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...