Einföld og fljótleg leið
Það er gott að kunna einfalda og fljótlega leið til að slaka á líkamlegri-andlegri- eða tilfinngalegri spennu. Eftirfarandi aðferð er einskonar sjálfs-sefjun, sem hægt er að nota til að bæta líðan.
- Komdu þér þægilega fyrir í stól með báðar fætur á gólfinu, bakið beint og önnur hendin hvílir í lofanum á hinni.
- Finndu þér fastan punkt til að horfa á án þess að blikka augunum. (t.d. upp í loft )
- Lokaðu augunum.
- Dragðu djúpt andann, finndu hvað svæðið í kringum augun slaknar, hafðu athyglina á því svæði.
- Dragðu djúpt andann, slökunin breiðist yfir allt andlitið og niður á axlir.
- Dragðu djúpt andann, slökunin breiðist niður handleggina og út í gegnum fingurnar.
- Dragðu djúp andann, slökunin breiðist niður líkamann, fæturnar og út um tærnar.
- Dragðu djúpt inn andann og finndu að í hvert sinn sem þú andar að þér er eins og líkaminn lyftist aðeins upp og í hvert sinn sem þú andar frá þér er eins og líkaminn sígi niður, endurtaktu þetta nokkrum sinnum rólega og njóttu þess.
- Nú skaltu telja rólega í huganum frá 100 og niður í 97. Dragðu andann djúpt við hverja tölu. Þegar þú segir í huganum 97 hefur þú náð fullkominni slökun.
- Nú skaltu fara með jákvæðar staðhæfingar í huganum, eitthvað sem hentar þér svo sem að öll streita líði burt eða að kvíði minnki dag frá degi. Einnig er gott að róa sig niður fyrir svefn með þessari aðferð þá finnur þú fyrir meiri og meiri værð við hverja útöndun.
- Segðu við sjálfan þig í huganum að næst þegar ég tel frá 100 og niður í 97 finn ég strax fyrir djúpri slökun.
- Að lokum telur þú frá 1 og upp í 5. Þú munt finna fyrir vellíðan og hvíld eins og þú hafir dottað í smá stund (nema þú viljir sofna en þá sleppir þú að telja þig upp) Þegar þú segir 5 opnar þú augun og teygir úr þér. Líkaminn hefur náð að slaka á og hugurinn hefur róast.
Gangi þér vel og mundu að æfingin skapar meistarann.