SÁÁ

Um sniffefni

 

 

lím, bensín, kveikjaragas, þynnir, leiðréttingalakk, túss o.fl

Það sem einkennir sniffefni er, að þau eru "rokgjörn", þ.e. gufa auðveldlega upp og þegar gufum af þeim er andað niður í lungun, koma þau af stað einkennum sem líkjast vímu. - Sniffefnin eru framleidd til ýmiskonar nota, sem orkugjafar, hreinsiefni, til að þynna málningu o.fl. Þau eru alls ekki ætluð til neyslu, enda í þeim ýmis efnasambönd sem er mjög skaðleg fyrir líkamann.

 

Hvernig virka sniffefnin?

Þau gefa einhverskonar vímutilfinningu í byrjun sem er þó meira í ætt við slæman svima, en síðan fylgir spenna. Einstaklingurinn missir gjarnan stjórn á hreyfingum sínum, skynjun brenglast og hugsun verður ruglingsleg. Ofskynjanir og krampar og/eða meðvitundarleysi gætu fylgt í kjölfarið.

 

Hvers vegna sniffa sumir?

Líklega sniffa flestir af eintómri forvitni, finnst spennandi að prófa. Sumir sniffa til að flýja vandamál og vanlíðan. - Það er tiltölulega einfalt að nálgst sniffefni og margir sem sniffa gera sér alls engan grein fyrir hættunum sem því fylgja.En er nokkuð hættulegt að sniffa?

 

En er nokkuð hættulegt að sniffa?

JÁ! Eiturgufurnar sem orsaka vímuástandið skaða líkamann, bæði taugakerfið og önnur líffæri. Eiturgufurnar skerða hæfni lungnanna til að vinna súrefni fyrir blóðrásina, þannig að sá sem sniffar býr alltaf við verulegan súrefnisskort. Þessar gufur geta leitt til tímabundinnar blindu og þær geta skaðað lungu, heila og lifur. Vitað er um allmörg dauðsföll vegna sniffs. Í sumum tilfellum vegna köfnunar: Neytandinn missir meðvitund og kafnar í plastpokanum sem hann geymir efnið í. Í öðrum tifellum hafa hjartsláttartruflanir sem gjarnan fylgja sniffvímu leitt til hjartastopps.

Enn fleiri dæmi eru til um einstaklinga sem liðið hafa varanlegn skaða af völdum sniffs, þó ekki hafi það leitt þá til dauða.

Um er að ræða varanlega lömun, mikla skerðingu á greind o.fl.  

  • Sniff getur leitt til óbætanlegs skaða í lungum, heila, lifur og beinmergi. 

  • Sniff getur leitt til meðvitundarleysis og jafnvel dauða.

  • Sniff getur leitt til neyslu annarra vímuefna.


 
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...