SÁÁ

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Batahelgi

 

Bati & ófullkominn bati - fræðsluhelgi fyrir alkóhólista/fíkla

Batahelgin fer fram laugardag og sunnudag kl. 09:00 - 16:00.

 

Skilyrði þátttöku í batahelginni er að þátttakendur hafi verið allsgáðir og virkir í AA-samtökunum í minnst þrjá mánuði. Ekkert mælir gegn því að hjón (fólk í sambúð) komi saman á batahelgina, enda verði þau ekki saman í hóp.

 

Markmið batahelgarinnar er að auka skilning þátttakenda á bata við alkóhólisma og hjálpa þeim til að glöggva sig á hvar þeir eru staddir í þróun batans. Í kjölfar helgarinnar ættu þátttakendur að skilja betur en áður, hvaða verkefnum þeir standa frammi fyrir, vera hæfari til að setja sér markmið og framfylgja þeim.

 

Fyrirlestrar og hópfundir

Batahelgin fer fram með fyrirlestrum og hópfundum. Haldnir eru fimm fyrirlestrar: 

 

• Alkóhólismi og bati við honum

• Bataþróun

• Bati og ófullkominn bati

• Föll og fallþróun

• Sjálfsskoðun

 

Þátttakendur fá minnisblöð í fyrirlestrartímum svo þeir geti fylgst betur með og rifjað upp efni fyrirlestrana síðar. Hópfundir verða 6 og einn sameiginlegur fundur með öllum þátttakendum er í lokin. Á hverjum hópfundi er sérstakt umræðuefni tengt fyrirlestrunum, sem ráðgjafi kynnir í upphafi fundar.

 

Batahelgar eru reglulega á dagskrá í VON Göngudeild SÁÁ í Reykjavík og einnig í Göngudeild SÁÁ á Akureyri.

 

Skráning og upplýsingar eru í síma 530-7600. Sjá næsta námskeið.

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...